Svo virðist sem mótmælendur hafi náð að brjóta sér leið inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Viðbrögð lögreglunnar voru þau að úða piparúða yfir mótmælendur, sem eru líklega mörg hundruð talsins.
Uppþotin eru vegna skyndilegrar handtöku mótmælandans sem dró fána Bónuss að húni við Alþingishúsið fyrir tveimur vikum. Haukur Hilmarsson mótmælandi var handtekinn í gærkvöldi eftir vísindaferð nemenda Háskóla Íslands í Alþingi.
Formleg ástæða handtökunnar er sögð vera sú að Haukur hefur ekki greitt sekt vegna mótmæla hans með samtökunum Saving Iceland árið 2005. Haukur fékk ekki tveggja vikna fyrirvara á afplánunina, eins og venjan er.
Móðir Hauks segirg hins vegar að hann hefði engan fyrirvara fengið á afplánunina, auk þess sem hann hefði áður setið af sér dóminn, en verið sleppt vegna plássleysis.
Margar rúður í lögreglustöðinni hafa verið brotnar. Uppþotin eru enn yfirstandandi.
Fyrir skemmstu réðust lögreglumenn í óeirðaklæðnaði gegn mótmælendunum. Að sögn sjónarvotta er gríðarleg spenna á svæðinu, og það hefur soðið upp úr.
Myndir af uppþotunum munu birtast á DV.is innan skamms.





Fanney Þorbjörg: „Ég ætla aldrei að æfa skíði aftur“
Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla