Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Hinn 19 ára gamli Johan Nel var á föstudaginn dæmdur í fjórfalt lífstíðarfangelsi í Suður-Afríku fyrir morð sín á fjórum blökkumönnum, þar af tveimur börnum, í kynþáttahaturstengdu morðæði.
Verjandi drengsins segir að úrskurðinum verði áfrýjað.
Nel var átján ára þegar hann framdi voðaverkin í janúar síðastliðnum. Hann var einnig sakfelldur fyrir ellefu tilraunir til morðs þar sem hann hlaut 68 ára dóm fyrir. Þá fékk hann fimm ár fyrir ólöglega byssueign.
Meðal fórnarlamba Nel var móðir sem hélt á nýfæddu barni sínu, maður á áttræðisaldri og tíu ára gamall drengur. Vitni sögðu hann hafa hrópað kynþáttaníð í átt að fórnarlömbum sínum á meðan skotárásin varði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu