Saga af forseta, bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar, kom út í fyrradag. Einkalíf forsetans er fyrirferðarmikið í bókinni og Guðjón lýsir meðal annars átakanlegu dauðastríði Guðrúnar Katrínar Þorgergsdóttur og forsetinn segist sjálfur í bókinni nánast hafa verið lamaður af sorg og reiði þegar hann horfði á bak ástkærri eiginkonu sinni og lífsförunaut eftir harða baráttu við óvæginn sjúkdóm. DV birtir í helgarblaðinu valda kafla úr bók Guðjóns.
Þegar við blasti að barátta Guðrúnar Katrínar við bráðahvítblæði yrði tvísýn leituðu forsetahjónin á náðir færustu sérfræðinga í Bandaríkjunum. „Síðdegis 19. júní kom Ólafur Ragnar heim í íbúðarhúsið á Bessastöðum en þar var þá undarleg þögn. Hann fann konu sína uppi á lofti. Hún var þá búin að fá niðurstöðurnar. Hvítblæðið var komið á skrið á nýjan leik. Þau höfðu nánast útrýmt óttanum úr huga sér en nú helltist ískaldur veruleikinn yfir þau aftur. Klukkutíma síðar þurfti Ólafur Ragnar að vera í Bessastaðastofu til þess að taka á móti hópi Vestur-Íslendinga. Þar var hann ekki með sjálfum sér og varð að yfirgefa samkvæmið,“ segir í Sögu af forseta.
„Nokkrum dögum síðar var tekin ákvörðun um að Guðrún færi í mergskipti, í þeim fólst eina vonin sem eftir var. Eftir því sem fólk er eldra er hins vegar minni von um að slík aðgerð takist. Guðrún Katrín var orðin 64 ára. Á Norðurlöndum eru ekki gerð mergskipti á fólki sem komið er yfir sextugt, það er talið vonlaust. Íslensku læknarnir mátu það hins vegar svo að í tilfelli Guðrúnar mætti reyna. Ákveðið var að leita til Fred Hutchinsson-stofnunarinnar í Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna sem er talin sú langfremsta í heimi á þessu sviði.“
Nánar í helgarblaði DV






Fanney Þorbjörg: „Ég ætla aldrei að æfa skíði aftur“
Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla