ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Eintóm vitleysa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:09 › 22. nóvember 2008
Þórhallur var fyndnasti maður Íslands árið 2007

Þórhallur var fyndnasti maður Íslands árið 2007 Mynd DV/Eggert Jóhannesson

„Þetta er bara tóm vitleysa,“ segir Þórhallur Þórhallsson, einn af aðstandendum vefsíðunnar Vitleysa.is sem nýlega leit dagsins ljós. Þórhallur, sem er sonur hins landsþekkta grínista Ladda, stendur fyrir henni ásamt Eyvindi Karlssyni, Jóni Haukdal og Bjarna Baldvinssyni.

Að auki hafa þeir félagar fengið að spreyta sig sem þáttastjórnendur en um þessar mundir hafa þeir verið með þátt á ÍNN sem ber sama heiti. „Síðasti þátturinn fer að vísu í loftið á föstudag en þeir voru sex talsins. Það var stutt og laggott þar sem við fengum okkar tækifæri. Nú viljum við einbeita okkur að vefsíðunni.“

Nafn síðunnar ber með sér innihaldið. „Þetta er bara grín og glens og við tökum reglulega upp sketsa sem við ætlum að henda þarna inn á síðuna.“ Innblásturinn segjast þeir sækja í allt milli himins og jarðar. Stundum í pólitíkina og efnahagsástandið og stundum bara út í loftið.

Þórhallur er ekki sá eini sem er grínið í blóð borið en Eyvindur Karlsson er sonur Spaugstofugrínistans Karls Ágústs Úlfssonar. Þá er Jón Haukdal frændi söngkonunnar Birgittu Haukdal. „Pabbi hans Bjarna er bara bifvélavirki,“ bætir Þórhallur sposkur við.

asdisbjorg@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.