ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

FME hefur rannsakað Stím í heilt ár

21:47 › 22. nóvember 2008
  • Lárus Welding segist hafa afhent Fjármálaeftirlitinu öll gögn um Stím fyrir ári síðan.

    Lárus Welding segist hafa afhent Fjármálaeftirlitinu öll gögn um Stím fyrir ári síðan.

Lárus Welding hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna Stím málsins sem DV skrifaði fyrst um í byrjun síðustu viku.
Í yfirlýsingunni kemur fram að Lárus, sem þá var bankastjóri Glitnis, hafi afhent Fjármálaeftirlitinu allar upplýsingar í nóvember á síðasta ári um Stím ehf eftir að fyrirtækið fékk tæplega tuttugu milljarða lán án ábyrgðar hjá bankanum.

Þegar DV ræddi við Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmanns frá Bolungarvík í byrjun síðustu viku, sagðist hann fullviss um að Fjármálaeftirlitið myndi komast að því að ekkert óeðlilegt hafi farið fram hjá félaginu.

Sú rannsókn virðist því hafa staðið yfir í heilt ár án niðurstöðu.

Þegar haft var samband við Fjármálaeftirlitið í síðustu viku vegna Stím vildi talskona þess ekki tjá sig um það hvort félagið væri í rannsókn hjá eftirlitinu. Reyndar vildi hún ekki heldur tjá sig um það hvort það væri ekki í rannsókn.

Stím ehf var stofnað i október á síðasta ári. Glitnir lánaði félaginu tæplega tuttugu milljarði króna til þess að kaupa hluti í annarsvegar FL Group, fyrir rúma átta milljarði, og svo hinsvegar í Glitni sjálfum fyrir sextán milljarði. Huldumennirnir á bak við Stím virðast hafa lagt fram um það bil fimm milljarði sjálfir. Eini skráði aðilinn að Stím er útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir.

Yfirmaður fjárstýringadeildar Saga Capital, Þórleifur Stefán Björnsson, fór með prókúruumboð fyrir félagið auk þess sem hann var framkvæmdarstjóri og stjórnarmaður þess. Hann vildi ekki tjá sig um félagið þegar DV spurði hann fyrr í vikunni. Þess má geta að blaðamaður hefur einnig margsinnis reynt að ná sambandi við Lárus Welding án árangurs.

Talið er að minnsta kosti tíu milljarðir af þeim tuttugu sem félagið fékk lánaða hjá Glitni, séu tapaðir. Þeir sem stofna eignarhaldsfélag eru ekki ábyrgir persónulega fyrir tapi þess. Eina tapið sem þeir þurfa að bera, eru þær 88 þúsund krónur sem það kostar að stofna slíkt félag.
valur@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.