Carter og Annan meinaður aðgangur að Simbabve

Robert Mugabe og ríkisstjórn hans meinar „öldungunum“ aðgang að landi sínu.

Robert Mugabe og ríkisstjórn hans meinar „öldungunum“ aðgang að landi sínu.

Laugardagur 22. nóvember 2008 kl 09:21

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Fyrrum aðalaritari Sameinuðu Þjóðanna, Kofi Annan, og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Jimmy Carter, hafa neyðst til að hætta við áformaða heimsókn sína til Simbabve þar sem ríkisstjórn landsins neitaði þeim um vegabréfsáritun.

Ætluðu Carter og Annan að halda til Simbabve á fund eiginkonu Nelson Mandela, Graca Machel. Yfirvöld í Simbabve neita því að hafa sett þeim félögum stólinn fyrir dyrnar.

„Við urðum að hætta við fyrirhugaða heimsókn þar sem ríkisstjórnin lýsti því yfir að hún myndi ekki vera samvinnuþýð í þessu máli,“ sagði Annan á blaðamannafundi í Jóhannesarborg eftir að ljóst var að ekkert yrði úr ferðinni.

Annan, Carter og Machel skipa saman hóp sem kallast the Elders, eða öldungarnir, sem fjalla um hin ýmsu átakamál í heiminum. Þau munu þess í stað hittast í Suður-Afríku til að ræða málefni Simbave, en Robert Mugabe forseti landsins hefur verið gagnrýndur harðlega af mannréttindasamtökum sem segja helming íbúa landsins standa frammi fyrir hungursneyð í upphafi næsta árs.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:33

Séra Gunnar sýknaður

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:20

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 23:10

Netþjösni dæmdur

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 22:15

Hélt dagbók yfir refsingar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:22

Kólera og vatnsskortur í Harare

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 21:12

Sexí grýla

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 20:13

Óskalisti Björgólfs fyrir jólin

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 18:08

Mótmæla í París

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:50

Forsetinn hvetur til byltingar í stafrænu ljóði

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:45

Range Rover-brúðkaup í skugga gjaldþrots

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:39

Nýjar upptökur af einræðisherra

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00

Hrímaðir tónleikar Gunnars Gunnarssonar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 17:00

Sparisjóðsstjóri á ofurlaunum

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 16:00

Tenórarnir fjórir í Óperunni

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30

Reyndi að frelsa mann úr haldi lögreglu

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:30

Auður og Sigurbjörg tilnefndar

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 15:14

Franskir hommar elska Gillz

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:40

Aðför ríkisins að RÚV

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:37

Rjúpnaskyttan enn ófundin

Þriðjudagur 2. desember 2008 kl 14:30

Hóta að grýta Mugison