ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Borðuðu nautasteik daglega í margar vikur

10:55 › 22. nóvember 2008
Erla Bolladóttir og Sævar Ciesielski rifja upp póstsvikin

Erla Bolladóttir og Sævar Ciesielski rifja upp póstsvikin DV/Róbert Reynisson

Erla Bolladóttir og Sævar Cieselski hafa verið á milli tannanna á fólki í gegn um árin. Þau settust niður með blaðamanni DV og ræddu gamla tíma.

Stuttu áður en Guðmundar- og Geirfinnsmálin voru til rannsóknar voru þau handtekin fyrir póstsvik sem þau höfðu framið.

„Ég og Erla áttum nóg af peningum,“ segir Sævar brosandi og lítur til fortíðar. Þau voru rétt að nálgast tvítugt og gátu leyft sér ýmsan munað.
Erla hlær. „Það er nú frjálslega farið með staðreyndir. En jú, það má kannski segja það.“

Sævar rifjar upp þegar hann fór reglulega til útlanda og smyglaði hassi til landsins. „Þegar fimm þúsund króna seðlarnir voru búnir fór ég bara aftur út,“ segir hann.

Erla er á öðru máli. „Ég sá nú ekki mikið af þessum peningum fyrir hassið. Fimm þúsund kallarnir voru frá póstsvikamálinu. Ég átti nælonslopp sem var keyptur í Hagkaupum í gamla daga. Hann hékk alltaf inn í skáp og við settum fimm þúsund kallana í vasana á honum. Síðan þegar okkur vantaði pening fórum við bara í vasana á náttsloppnum,“ segir hún um vafasamar minningar. „Honum datt einu sinni í hug að gera tilraun og vildi prófa að borða bara nautasteik í nokkrar vikur. Við náðum þá í fimm þúsund kalla, fórum í kjötbúðina og keyptum nautasteik.“

Sævar segir það hafa augljósar afleiðingar að borða nautasteik daglega í margar vikur. „Við urðum ofboðslega löt og þreytt. Það tekur svo mikla orku frá líkamanum að brjóta niður kjöt. Enda borða ég lítið kjöt. Sérstaklega þegar ég er að drekka,“ segir Sævar. Erla spyr hann kankvís: „Því þá nýtist áfengið ekki eins vel?“ Sævar brosir: „Nei. Þetta voru skemmtilegir tímar. En þeir koma aftan að manni.“

Viðtalið má lesa í heild sinni í helgarblaði DV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.