ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Boða stórt pókermót

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:24 › 22. nóvember 2008
Póker nýtur mikilla vinsælda hér á landi en margir efast um lögmæti hans.

Póker nýtur mikilla vinsælda hér á landi en margir efast um lögmæti hans.

Pókersamband Íslands mun á morgun standa fyrir pókermóti fyrir félagsmenn sína á veitingastaðnum Gullöldin í Grafarvogi. Mun það kosta félagsmenn fimm þúsund krónur að taka þátt og verða vinningar í formi peningaverðlauna sem þátttakendur leggja til með aðgangseyri auk þess sem Pókersambandið mun leggja til viðbótarvinningsfé að upphæð 25 þúsund krónur.

Sveinn Andri Sveinsson, lögfræðingur og talsmaður sambandsins, verður á staðnum ef til afskipta lögreglu kemur. Eins og mikið var fjallað um fyrir rúmu ári síðan stöðvaði lögreglan pókermót Sindra Lúðvíkssonar og gerði allan varning mótsins upptækan.

Í samtali við Fréttablaðið á dögunum sagðist Sveinn Andri ekki hafa neina trú á því að slíkt myndi henda að þessu sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.