ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Hungruðum börnum fjölgar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:01 › 21. nóvember 2008
Fjöldi Bandaríkjamanna hefur ekki ráð á að nærast sem skyldi.

Fjöldi Bandaríkjamanna hefur ekki ráð á að nærast sem skyldi.

Á síðasta ári stríddu 691.000 börn í Bandaríkjunum við sult á einum eða öðrum tíma og einn af hverjum átta íbúum þjóðarinnar átti óhægt um vik með að nærast almennilega, jafnvel áður en efnahagslægðin skall á af fullum þunga. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu landbúnaðarráðuneytis Bandaríkjanna.

Fjölskyldur einstæðra mæðra komu verst út hvað varðar hungur og fjöldi þeirra barna sem fengu minna magn fæðu en þau voru vön jókst um meira en fimmtíu prósent frá árinu 2006. Árið 2006 var fjöldi þeirra barna um 430.000, en mestur fjöldi sem skráður hefur verið var 716.000 börn árið 1998.
Fjöldi barna og fullorðinna sem glímdu við sult 2007 var 36,2 milljónir. Samvæmt því höfðu 12,2 prósent þjóðarinnar hvorki ráð á að nærast á þann hátt að þau gætu lifað heilbrigðu lífi né fengu aðstoð til þess.

Þessar tölur munu að öllum líkindum setja þrýsting á verðandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, sem hét því að auka matvælaaðstoð og binda enda á hungur barna eigi síðar en 2015.
James Weill, forseti Samtaka gegn hungri, sagði að þessar tölur sýndu að efnahagsvöxtur fyrstu sjö ár forsetatíðar Georges W. Bush Bandaríkjaforseta hefði ekki náð til þess fólks sem hvað mest ætti við fátækt og hungur að stríða. „Fólkið sem býr við sárustu fátæktina þjáist mest,“ sagði Weill.
Í skýrslunni kom í ljós að þær fjölskyldur sem standa verst eru fjölskyldur einstæðra mæðra (30,2%), fjölskyldur þeldökkra (22,2 %), fjölskyldur spænskumælandi (20,1%) og fjölskyldur með tekjur undir fátækramörkum (37,7%).

Þau fylki sem komu verst út voru Mississippi, Nýja-Mexíkó, Texas og Arkansas.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.