Bónusflaggarinn handtekinn
Maðurinn sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu eftir mótmælin á Austurvelli 10. nóvember var handtekinn í kvöld. Hann var í hópi nemenda sem fóru í vísindaferð í þinghúsið og skrifstofuhúsnæði á vegum þingsins í kvöld. Þar báru glöggir menn kennsl á hann og var hann handtekinn skömmu síðar.
Flöggun Bónusfánans í stað þjóðfánans á Alþingishúsinu vakti mikla athygli og hörð viðbrögð. Lögreglan brást fljótt við og reyndi að fanga tvo unga menn sem klifrað höfðu upp á Alþingishúsið. Þegar sumum áhorfendum þótti lögreglumenn fara sér hægt við að setja upp stiga til að hjálpa fánamönnunum niður kom til ryskinga. Annar fánamanna slapp frá lögreglu en hinn var handsamaður. Nú hefur seinni fánamaðurinn sem sagt verið handtekinn.
Ástæðan fyrir því að hann var handtekinn er hinsvegar ekki vegna þess að hann flaggaði fánanum, heldur átti hann eftir að afplána dóm sem hann hlaut árið 2006. Þá var hann dæmdur fyrir að klifra upp í krana á Kárahnjúkum í mótmælaskyni vegna virkjunarframkvæmda. Þá var honum gert að greiða tvö hundruð þúsund krónur. Í stað þess að borga sektina ákvað mótmælandinn að afplána fjórtán daga refsingu.
Hinsvegar var maðurinn handtekinn fyrirvaralaust, sem samrýmist ekki lögum um afplánun, en þar segir að tilkynna verði, með minnsta kosti þriggja vikna fyrirvara, hvar og hvenær viðkomandi eigi að afplána refsingu sína. Samkvæmt móður mótmælandans, þá fékk hann ekki slíka viðvörun. Sjálf taldi hún ástæðuna einfaldlega vera að koma eigi í veg fyrir að hann komist á skipulögð mótmæli.
Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli á morgun. Aðstandendur mótmælanna, Hörður Torfason tónlistarmaður og aðrir í hópi sem nefnir sig Raddir fólksins, leggja mikla áherslu á að mótmælin verði friðsamleg. Mótmælendum hefur fjölgað mikið. Þegar fyrstu mótmælin voru haldin í byrjun október nættu fáein hundruð en um síðustu helgi voru þeir að lágmarki sex þúsund.
Mánudagur 1. desember 2008 kl 23:08
Fréttamenn ráðast gegn útvarpsstjóra
Mánudagur 1. desember 2008 kl 22:22
Insúlín gegn öldruðum
Mánudagur 1. desember 2008 kl 22:01
Brotist inn hjá Baltasar Kormáki
Mánudagur 1. desember 2008 kl 21:14
Ástin dó hjá Bryndísi og Atla
Mánudagur 1. desember 2008 kl 20:58
Jafnmikill stuðningur við VG og stjórnina
Mánudagur 1. desember 2008 kl 20:15
Jólasveinaskortur í Þýskalandi
Mánudagur 1. desember 2008 kl 19:50
Vildu toppa ellefta september
Mánudagur 1. desember 2008 kl 19:39
Geir jafnóvinsæll og George W. Bush
Mánudagur 1. desember 2008 kl 19:03
Tvennt ólíkt, ráðherrann og pabbinn
Mánudagur 1. desember 2008 kl 18:40
Lækka leikskólagjöld í kreppunni
Mánudagur 1. desember 2008 kl 18:37
Mótmælendur hættu við Davíðsheimsókn
Mánudagur 1. desember 2008 kl 18:12
Keisaraskurðir í tísku
Mánudagur 1. desember 2008 kl 17:46
Völva Séð og heyrt rekin
Mánudagur 1. desember 2008 kl 17:45
Ungfrú Ísland týndi kjólnum
Mánudagur 1. desember 2008 kl 17:24
Lögreglan yfirgaf anddyri Seðlabankans
Mánudagur 1. desember 2008 kl 17:00
Mótmælendur ætla heim til Davíðs
Mánudagur 1. desember 2008 kl 16:43
Lögregla bíður átekta
Mánudagur 1. desember 2008 kl 16:28
Hillary Clinton verður utanríkisráðherra
Mánudagur 1. desember 2008 kl 16:10
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar duga ekki til
Mánudagur 1. desember 2008 kl 16:06







