ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Stjórnarmenn beggja vegna borðsins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:00 › 20. nóvember 2008
 Þorsteinn M. Jónsson

Þorsteinn M. Jónsson

Þrír stjórnarmenn í Glitni sátu einnig í stjórn FL Goup þegar huldufélagið Stím ehf. fékk 25 milljarða króna lán hjá bankanum til kaupa á hlutum í FL. Svo virðist sem lánið hafi verið veitt án fullnægjandi veða. Þegar lánið var veitt gegndi Þorsteinn M. Jónsson stjórnarformennsku í Glitni samhliða setu í stjórn FL Group. Hann vildi ekki staðfesta við DV hvort lánið hafi farið í gegnum stjórnina á sínum tíma.

Þegar Stím ehf. fékk lánið var Þorsteinn M. Jónsson stjórnarformaður Glitnis auk þess að vera stjórnarmaður í FL Group. En hann var ekki eini stjórnarmaður FL Group sem sat í báðum félögum því Skarphéðinn Berg Steinarsson auk Jóns Sigurðssonar, síðar forstjóra FL Group, sátu einnig í stjórn Glitnis þegar lánið var samþykkt. Þegar Þorsteinn var spurður hvort hin eðlilega boðleið slíkra risalána væri sú að stjórnin þyrfti að samþykkja þau, vildi Þorsteinn ekki tjá sig um það, þótt bankaleynd hvíli ekki á verklagsreglum banka. Aðspurður hvort hann kannaðist við félagið, svaraði hann því að hann gerði það, þótt hann vissi ekki um eigendur þess.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.