ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Burt með Davíð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:03 › 20. nóvember 2008
  • Samfylkingarfélagið í Kópavogi vill Davíð burt.

    Samfylkingarfélagið í Kópavogi vill Davíð burt.Mynd: DV

„Brýnt er að skipta um stjórnendur í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu til að endurvekja traust almennings og alþjóðasamfélagsins á íslenskum stjórnvöldum,“ segir í ályktun Samfylkingarfélagsins í Kópavogi og því ekki hægt að skilja ályktunina öðruvísi en að þar á bæ vilji fólk Davíð burt.

Í ályktuninni er jafnframt lögð þung áhersla á að markmið jafnaðarstefnunnar verði höfð að leiðarljósi við uppbyggingu hins nýja Íslands. Þá segir enn fremur að forgangsverkefni okkar sé að slá skjaldborg um fjölskyldurnar í landinu og tryggja fjárhagslegt öryggi heimilanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?