ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Á fullu Stími í FL Group

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:00 › 19. nóvember 2008
Frá aðalfundi Fl Group.

Frá aðalfundi Fl Group.

Eitt dularfyllsta eignarhaldsfélag landsins er væntanlega Stím ehf. en sá sem er skráður fyrir félaginu er Jakob Valgeir Flosason útgerðarmaður í Bolungarvík. Félagið fékk tuttugu og fimm milljarða króna lán í október á síðasta ári og fjárfesti í kjölfarið í FL Group rétt áður en félagið skilaði mesta tapi Íslandssögunnar.

„Já, já, en ég vil ekki tjá mig um það,“ svaraði útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason þegar hann var spurður um tuttugu og fimm milljarða lán sem félagið Stím ehf. fékk frá Glitni í október á síðasta ári. Samkvæmt heimildum DV gjaldféll lánið í síðasta mánuði auk þess sem lítil sem engin veð voru lögð fram fyrir lántökunni.

Þegar haft var samband við Fjármálaeftirlitið og spurt hvort félagið, eða lántaka þess hjá Glitni, væri í rannsókn vildi eftirlitið ekki gefa upp hvaða félög væri verið að rannsaka. Þegar upplýsingafulltrúi eftirlitisins var ennfremur spurður hvort félagið væri þá ekki í rannsókn, vildi hún ekki tjá sig um það.

Það var í október á síðasta ári sem Glitnir lánaði Stím ehf. tuttugu og fimm milljarða til hlutabréfakaupa í FL Group, sem stuttu síðar skilaði mesta tapi Íslandssögunnar, eða tæpum sjötíu milljörðum króna. Með láninu varð Stím sjöundi stærsti hluthafi FL Group en eignarhaldsfélagið átti 4,33 prósent í félaginu.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.