Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Troðfullt hús var á veitingastaðnum NASA í kvöld þar sem almenningur kom saman til að fjalla um kreppuna og hlutverk fjölmiðla í nútíð og þátíð. Mikill hiti var í fundarmnönnum sem einróma vildu að ríkisstjórnin axlaði ábyrgð og viki frá völdum og sömuleiðis Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Þungt var í mörgum þeirra sem tóku til máls og líkti einn framsögumanna efnahagsslysinu við manndráp af gáleysi. Fjölmiðlar fengu ýmsar átölur í bland við hrós. Allt að þúsund manns voru mættir til að taka þátt í borgarafundinum. Öllum alþingismönnum var boðið en einungis tveir sáu sér fært að mæta, þeir Árni Árnason frá Samfylkingu og Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Aðir héldu sig fjarri fundinum.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir