ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Þjófurinn gripinn með lyftingarlóð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:20 › 16. nóvember 2008
DV-mynd

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um helgina vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá stóð lögreglan þjóf að verki fyrir helgi en maðurinn var handtekinn fyrir utan fjölbýlishús á Vallarheiði, gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli.

Lögreglan fékk tilkynningu um að þjófavarnarkerfi hússins væri í gangi og þegar laganna verðir mættu á vettvang sáu þeir hvar maður kom út úr húsinu með lyftingarlóð. Við nánari skoðun á húsinu kom í ljós að búið var að valda nokkrum skemmdum innandyra og tæma úr slökkvitæki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.