Samkomulag hefur tekist milli íslenskra stjórnvalda og ESB-ríkja þar sem stjórnvöld ábyrgjast þá lágmarkstryggingu sem EES reglur mæla fyrir um til innistæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innistæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið undir forystu Frakklands taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.
Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrirgreiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undanfarnar vikur. Erindi Íslands verður tekið fyrir næstkomandi miðvikdudag í stjórn sjóðsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð