Forsvarsmenn Iceland Express segja markaðsstarf félagsins erlendis ganga betur en nokkru sinni fyrr. Bókanir erlendra ferðamanna hafi aukist mikið og fjöldi umfjallana um Íslandsferðir í erlendum fjölmiðlum, slái nú öll met.
„Þetta er meiri umfjöllun en við höfum áður séð, í okkar markaðsstarfi. Að sögn þess fólks sem sinnir okkar kynningarstarfi erlendis, þá skýrist þessi mikli áhugi á Íslandi að miklu leyti af fréttaumfjölluninni sem var um bankahrunið. Ritstjórar og blaðamenn erlendra fjölmiðla telji lesendur sína hafa áhuga á að fræðast meira um Ísland og fjölmiðlarnir eru því mjög móttækilegir þessa dagana fyrir hugmyndum okkar og tillögum að umfjöllunarefnum,“ segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express.
Mælingar sem Iceland Express hefur látið framkvæma, sýna að fjallað hefur verið um Íslandsferðir með Iceland Express, hátt í þrjú hunduð sinnum í erlendum fjölmiðlum á síðustu tveimur mánuðum. Breska tímaritið Time Out birti á fimmtudaginn, svo dæmi sé tekið, heilsíðuumfjöllun um Ísland sem áfangastað. Fékk blaðið stjörnukokkinn Agnar Sverrisson, sem rekur veitingastaðinn Texture í London, til að mæla með veitingastöðum í Reykjavík. Uppáhaldsstaðir Agnars: Grillið á Sögu, Vox, Orange, Pylsubarinn og Sægreifinn. Á næstu dögum er svo von á greinum um Ísland í tískuritinu Elle, vikublaðinu OK og í The London Paper.
Þó að árangurinn af svona mikilli kynningu, taki yfirleitt langan tíma að skila sér, þá hefur bókunum í ferðir þegar fjölgað mikið. Erlendir ferðamenn sem bókuðu flug með Iceland Express fyrstu tvær vikur nóvember-mánaðar eru fleiri en á sama tíma í fyrra, hvort sem litið er til Bretlands eða áfangastaða Iceland Express í heild.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða