ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Indónesar sluppu við flóðbylgjur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:22 › 16. nóvember 2008
Varað var við flóðbylgju. Hamfarirnar á annan í jólum 2004 valda fólki enn ótta.

Varað var við flóðbylgju. Hamfarirnar á annan í jólum 2004 valda fólki enn ótta. DV-mynd Getty

Indónesísk yfirvöld hafa afturkallað viðvörun sem þau gáfu út um hættu á flóðbylgjum eftir öflugan neðansjávarjarðskjálfta undan ströndum Sulawesi-eyjar í austanverðri Indónesíu. Þrátt fyrir að jarðskjálftinn hafi verið gríðarlega öflugur virðast skemmdir af hans völdum vera litlar.

Jarðskjálftinn mældist 7,5 á Richterkvarða, það er minna en talið var upphaflega þegar styrkur hans var áætlaður 7,7 á sama kvarða. Neðansjávarskjálftar á þessum slóðum kalla á mikil viðbrögð, sérstaklega vegna þess að fólk er minnugt hamfaranna á annan í jólum árið 2005. Þá reið yfir jarðskjálfti upp á 9,0 á Richterkvarða. Hann hratt af stað flóðbylgju sem gekk á land víða við Indlandshaf og kostaði 230 þúsund manns lífið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.