Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþóðagjaldeyrissjóðsins, segir að sjóðurinn muni taka umsókn Íslands fyrir á miðvikudag. Strauss-Kahn hélt fréttamannafund í gærkvöldi eftir G20 leiðtogafundinn um heimskreppuna í Washington. Icesave reikningar hafa tafið umsókn Ísland hjá sjóðnum.
Strauss-Kahn vildi ekki gefa það upp hvort 2,1 milljarðs Bandaríkjadala lán til Íslands yrði samþykkt. Geir H. Haarde forsætisráðherra, segir að trúnaður hvíli á öllum skilmálum samningsins. Skilyrðin sem sjóðurinn setur eru óljós fyrir utan að stýrivextir hafa verið hækkaðir.
Málið átti að vera tekið fyrir í byrjun mánaðarins en var frestað vegna Icesave reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Ef sjóðurinn lánar okkur 2,1 milljarð Bandaríkjadala er það einungis einn þriðji þeirra upphæðar sem íslensk stjórnvöld telja sig þurfa.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung