ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Herdís Egilsdóttir fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:51 › 16. nóvember 2008
Herdís Egilsdóttir fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Herdís Egilsdóttir fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2008 voru afhent í hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands í dag á degi íslenskrar tungu. Einnig voru veitt sérstök viðurkenning fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veitti Herdísi Egilsdóttur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2008.

„Með hverri kynslóð fæðist tungumálið upp á nýtt. Það þroskast og þróast með nýjum notendum. Tungan er um leið framandi strönd landnema sinna.
Grunnskólakennarar þjóðarinnar eru leiðsögumenn í þeirri för“. Herdís Egilsdóttir fæddist á Húsavík árið 1934 og var styrkt til náms við Menntaskólann á Akureyri þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 1952 og ári síðar lauk hún kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands. Árið 1953 hóf hún kennslustörf við Skóla Ísaks Jónssonar og lét af störfum þar árið 1998 eftir 45 ár.

Herdís hefur samið fjölbreytt efni fyrir börn, jafnt í máli sem myndum og tónlist, en eftir hana liggur á annan tug barnabóka auk tímaritsgreina. Einnig hefur hún samið efni fyrir útvarp, sjónvarp og leikhúsin í landinu. Á seinni árum er Herdís einna kunnust fyrir verkefni sitt „Litlir landnemar“, þar sem leitað er svara við margvíslegum spurningum. Hvernig verður þjóð til? Hvernig kemur þjóð sér upp mannsæmandi lífsskilyrðum? Hvernig velur hún og hafnar eftir aðstæðum og efnahag?

Hvernig bregst hún við óæskilegum aðstæðum og freistingum og hvaða gildi hefur hún í hávegum? Verkefnið „Litlir landnemar“ fjallar um líf nútímafólks í landi þar sem allt vantar nema gjafir náttúrunnar. Nemendur stofna nýtt samfélag á fjarlægri eyju úti í hafi og þurfa að gera ráð fyrir öllum þeim mögulegu og ómögulegu aðstæðum sem upp koma við landnám. Þannig glíma ungir námsmenn við að móta sitt eigið samfélag með yfirsýn og fjölbreytilegum sjónarmiðum og án þess að einblína á lausnir talnakúnstarinnar.

Mannauður þjóðarinnar býr í grunnskólum landsins. Það hefur löngum verið hlutverk barnakennara að ávaxta þennan auð. Það er fulltrúi þeirra sem við heiðrum í dag fyrir hæfileika hennar til að kveikja ljós, áhuga og þorsta eftir þekkingu - til að virkja orkustöðvar æskunnar og veita henni staðgott vegarnesti í hretviðrum lífsins.

Herdís Egilsdóttir hlaut í verðlaun eina milljón króna og ritsafn Jónasar Hallgrímssonar í hátíðarbandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.