ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Heilli kirkju stolið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:13 › 16. nóvember 2008
  • Heill kirkju var stolið í Rússlandi.

    Heill kirkju var stolið í Rússlandi.Óþekkt

Tvöhundruð ára gömul kirkja skammt frá þorpinu Komarovo í Rússlandi er horfin. Kirkjan, sem var byggð 1809, var til staðar, ósnert, í júlí, en einhvern tímann í október var hún horfin af yfirborði jarðar.

Múrstein fyrir múrstein höfðu þjófar fjarlægt kirkjuna og ekki komst upp um athæfið fyrr en einhverju síðar. Kirkjan var ekki í alfaraleið og ekki í notkun, en embættismenn kirkjunnar höfðu íhugað að endurvekja guðsþjónustur í henni.

Það er ekki nýtt að þjófar beini spjótum sínum að kirkjum í dreifbýli Rússlands, enda hægt að fá gott verð fyrir íkona auk þess sem hægt er að selja efnivið kirknanna sem byggingarefni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.