ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Gríðarlega öflugur jarðskjálfti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:01 › 16. nóvember 2008
Varað var við hættu á flóðbylgjum. Rúm 200 þúsund létust í flóðbylgju 2005 og síðan þá hafa varnir verið efldar.

Varað var við hættu á flóðbylgjum. Rúm 200 þúsund létust í flóðbylgju 2005 og síðan þá hafa varnir verið efldar.

Gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir austanverða Indónesíu fyrir nokkru. Afl hans er metið upp á 7,7 á Richterkvarða. Stutt stund leið frá því jarðskjálftinn reið yfir þar til gefin var út viðvörun vegna hættu á flóðbylgjum.

Upptök jarðskjálftans voru neðansjávar úti fyrir Sulawesi-eyju. Það var einmitt eftir mikinn jarðskjálfta neðansjávar á annan dag jóla árið 2005 sem mikil flóðbylgja reið yfir mörg ríki við Indlandshaf. Síðan þá hafa varnir gegn slíkum flóðbylgjum verið efldar og tekið upp kerfi til að vara við ef hætta þykir á slíkum. Engar fréttir hafa borist af mannskaða eða tjóni og áður hafa verið gefnar út flóðbylgjuviðvaranir án þess að hamfarir hafi fylgt í kjölfarið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.