ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Framsókn herðir einnig ESB róðurinn

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
07:51 › 16. nóvember 2008
Guðni Ágústsson: “Það er ekki bara Seðlabankinn sem er rúinn trausti. Ríkisstjórnin er það einnig."

Guðni Ágústsson: “Það er ekki bara Seðlabankinn sem er rúinn trausti. Ríkisstjórnin er það einnig."

“Flokkur sem hefur krufið Evrópumál síðastliðin sjö ár er ekki að fara í kjölfar Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum,” sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins á fjölsóttum miðstjórnarfundi flokksins í gær.

Á fundinum var samþykkt að flýta landsfundi flokksins fram í janúar en hann var á dagskrá í marsmánuði á næsta ári. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig ákveðið að flýta flokksþingi sínu í kjölfar efnahagskreppunnar og sett á fót sérstaka nefnd sem ætlað er að móta nýja stefnu flokksins til Evrópusambandsins og hugsanlegrar umsóknar um aðild að því.

“Við gætum meira að segja gefið Sjálfstæðisflokknum mikið af upplýsingum sem við eigum til þess að hann geti flýtt sinni vinnu. Á sjö undanförnum árum hefur Framsóknarflokkurinn sett upp sína fyrirvara og rætt hvernig að þessu skuli staðið. Ég er hugsi yfir auðlindunum og veit ekkert hvað kæmi út úr aðildarviðræðum. Ef menn vilja kanna þá leið mun ég ekki standa gegn því,” segir Guðni.

Guðni segir að Framsóknarflokkurinn hafi fyrir löngu ályktað að endurskoða beri lög um Seðlabankann og þar eigi að vera einn seðlabankastjóri. “Það er ekki bara Seðlabankinn sem er rúinn trausti. Ríkisstjórnin er það einnig. Hún er ekki traustsins verð og menn eru undrandi um allan heim á skorti á viðbrögðum. Hún lætur kúga sig og slá sig flata. Mönnum ber saman um að við höfum leikið eftir leikreglunum varðandi Isesave reikningana. Hafi svo verið eigum við rétt á að skjóta málum okkar fyrir dómstól, en það er nú talið hættulegt. Það vilja ekki 27 Evrópuþjóðir og telja að það komi sér illa fyrir allt fjármálakerfið.”

Guðni kveðst hafa verið í leikhúsi þegar bankakerfið hrundi að sjá leikritið Hart í bak. “Við margbentum á klettinn sem þjóðarskútan var að steyta á. Við sögðum í heilt ár að þau væru að sigla í strand. Stoppið og segjið Hart í bak og snúið við.”



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.