ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fá ekki að sjá tölvupóst látins ættingja

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:41 › 16. nóvember 2008
DV-mynd

Ættingjar manns sem lést fyrir skömmu fá ekki aðgang að tölvupósti hans. Ættingjarnir höfðu óskað eftir aðgangi að tölvupósti mannsins hjá stofnun þar sem hann hafði tölvupóstfang.

Málinu var skotið til Persónuverndar til að skera úr um hvort ættingjarnir fengju aðgang að tölvupóstinum. Tölvupóstfangið er á vegum stofnunar á sviði fjarskiptamála og þó ljóst þætti að þar væri aðeins einkapóstur en enginn vinnupóstur úrskurðaði Persónuvernd að ættingjarnir skyldu ekki fá aðgang að tölvupóstinum. Slíkur aðgangur er óheimill þeim sem ekki tengjast starfsemi þess sem vistaði tölvupóstinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.