Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sprengjuhöllin og Hjaltalín spiluðu á tvennum tónleikum á Austfjörðum um helgina. Þar sem Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín, var vant við látin um helgina var engin önnur en Andrea Gylfadóttir fengin til að fylla í skarðið. Það má að sjálfsögðu búast við því að Hjaltalín hafi tekið vinsælasta lag sitt og jafnframt vinsælasta lag sumarsins, Þú komst við hjartað í mér, sem sveitin fékk að láni frá Páli Óskari en lagið var samið af tónlistarmanninum Togga. Um daginn tók hljómsveitin Retro Stefson sig til og skellti sinni útgáfu af laginu inn á Youtube og ef Andrea söng lagið á móti Högna í Hjaltalín hafa sex þekktir tónlistarmenn sungið lagið frá því í byrjun sumars.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum