Kristlaug Pálsdóttir og eiginmaður hennar lögðu ævisparnaðinn inn á Sjóð 9 í Glitni. Kristlaug brýndi fyrir þjónustufulltrúa að þar sem þau hjónin væru komin á aldur mættu þau ekki við neinni áhættu. Mynd: Úr einkasafni
Kristlaug Pálsdóttir lagði ævisparnaðinn inn á Sjóð 9 í Glitni og tapaði milljónum. Hún kennir sjálfri sér um og segir það hafa verið hennar ákvörðun en ekki eiginmannsins að velja þennan sjóð sem hún taldi algjörlega öruggan. Kristlaug lét sig dreyma um að opna lítið kaffihús og bjóða upp á heimabakaðar pönnukökur en sá draumur er nú fyrir bí.
„Fyrsta tilfinningin mín þegar ég heyrði af þessu var skömm. Mér fannst ég hafa látið plata mig og ég skammaðist mín fyrir það,“ segir Kristlaug Pálsdóttir sem ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Wium, tapaði milljónum eftir að hún lagði ævisparnaðinn inn á Sjóð 9 í Glitni.
Þau hjónin búa í Bárðardal á Norðurlandi og hafa lifað sparlega í gegnum árin. Eftir ráðleggingar þjónustufulltrúa Glitnis ákvað Kristlaug í maíbyrjun í fyrra að færa um tíu milljóna sparnað af Sparileið 60 yfir á Sjóð 9.
Fór að ráðum þjónustufulltrúa
„Ég setti peningana þarna inn því mér var sagt að þetta væri pottþétt. Ég sagði þjónustufulltrúanum að við hjónin værum orðin það fullorðin að við yrðum að hafa sparnaðinn í algjörlega öruggum sjóðum. Maðurinn minn er öryrki, hann er fyrrverandi sjómaður og við höfum nánast þurft að lifa á vöxtunum. Við gætum því ekki tekið neina áhættu með sparnaðinn,“ segir Kristlaug.
Hún rifjar upp að þjónustufulltrúinn hafi kynnt sjóðinn fyrir henni með því að sýna henni myndrænt hversu öruggir sjóðir Glitnis væru. „Mér var sýndur bæklingur með rauðum kúlum. Glitnir er alltaf með rauðar kúlur,“ segir Kristlaug og hlær. „Sjóður níu var alrauður og það þýddi að þar var engin áhætta. Aðrir sjóðir voru sýndir þannig að rauði liturinn náði ekki yfir alla kúluna og hinn liturinn táknaði þá áhættuna,“ segir Kristlaug sem brá mjög þegar inneignin rýrnaði verulega. „Við vorum voðalega reið og sár. Okkur fannst bankinn hreinlega vera búinn að bregðast okkur,“ segir hún.
Tuga prósenta tap
Kristlaug undrast hversu lítið hefur verið í umræðunni að sjóðfélagar misstu sjö prósent af inneign sinni strax við þjóðnýtinguna. Öll áherslan hafi verið á að sjóðfélagar hafi aðeins misst þau fimmtán prósent sem tekin voru af þeim síðar. Eftir að ríkið tók yfir Glitni fóru þær 9,7 milljónir sem Kristlaug og Guðmundur áttu niður í 9,1 milljón. Þegar fimmtán prósent voru tekin af til viðbótar stóðu eftir 7,7 milljónir. „Það vantar alveg í umræðuna að þeir tóku fyrst sjö prósent,“ segir hún. Heildartap sjóðfélaga var því rúmt 21 prósent.
Hún kennir sjálfri sér um að hafa ekki verið varkárari. „Ég sé um fjármál okkar hjóna. Ég bar ábyrgð á þessu. Það var ekki Guðmundur sem setti þetta inn á Sjóð 9,“ segir hún. Kristlaug tekur þó fram að margir hafi farið verr út úr þessu en þau. „Ég fer næstum að gráta þegar ég hugsa til allra þeirra sem hafa misst vinnuna og eiga jafnvel lítil börn.“ Hún skilur því vel þá sem hafa mætt á Austurvöll til að mótmæla. „Mér finnst frábært hvað fólk er rólegt þrátt fyrir reiðina. Ég kippi mér ekki upp við smá eggjakast. Það er ekki verið að skemma neitt með því,“ segir hún.
Pönnukökur og lummur
Í framtíðinni hafði Kristlaug séð fyrir sér að fyrir sparnaðinn gætu þau hjónin byggt upp í kringum býlið. „Ég var búin að láta mig dreyma um að opna kannski lítið kaffihús því umferðin hérna um sveitina verður sífellt meiri. Ég ætlaði að hafa þetta heimilislegt og bjóða upp á lummur og upprúllaðar pönnsur. En ég veit ekkert hvort nokkuð verður af því nú þegar þetta er allt saman orðið svona hræðilegt,“ segir hún.
Kristlaug gagnrýnir harðlega þá sem hafa ráðist á almenna bankastarfsmenn og kennt þeim um að ævisparnaðurinn sé fyrir bí. „Starfsfólkið í bankanum var bara að fara að fyrirmælum og vinna vinnuna sína. Þetta er ekki því að kenna,“ segir hún og fer fögrum orðum um starfsfólk Glitnis á bæði Húsavík og Akureyri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða