ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Aldraðir í Mexíkóborg fá víagra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:15 › 16. nóvember 2008
Víagratöflurnar kunna að hleypa lífi í fúna limi.

Víagratöflurnar kunna að hleypa lífi í fúna limi. Photos.com

Hætt er við að ládeyðan leggist af meðal aldraðra íbúa Mexíkóborgar frá og með 1. desember. Þá hyggst borgarstjóri borgarinnar, Marcelo Ebrard, dreifa víagra-töflum ókeypis til allra sem komnir eru yfir sjötugt.

Hver eldriborgari fær tvær víagra-töflur, ef læknisskoðun staðfestir að hjarta viðkomandi muni standast mögulegt álag.

„Kynlíf er stór hluti lífsgæða og gleði,“ sagði borgarstjórinn, þegar hann var spurður um ástæður ákvörðunar sinnar. Reiknað er með að 112.000 víagra-töflum verði dreift í átakinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.