ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

500 manns mótmæltu á Akureyri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:18 › 16. nóvember 2008
Um fimm hundruð manns komu saman á Akureyri í gær

Um fimm hundruð manns komu saman á Akureyri í gær Andrea Hjálmsdótir

„Við mótmæltum fyrir þremur vikum síðan og aftur núna, við ætlum að vera aftur næsta laugardag,“ segir Guðrún Þórsdóttir mótmælandi á Akureyri. Um fimm hundruð manns létu sjá sig á Ráðhústorginu á Akureyri í gær á sama tíma og fólk mótmælti á Austurvelli í Reykjavík.

Að sögn Guðrúnar var tilgangurinn með göngunni að bæjarbúar sýndu samstöðu og samhug og létu rödd sína heyrast. Talsmenn göngunnar lögðu áherslu á um óflokkspólitíska uppákomu að ræða, aðeins andsvar við því hvernig komið er fyrir íslensku samfélagi. Einnig var verið að sýna samstöðu með friðsælum mótmælum í Reykjavík.

Ræðumenn mótmælanna voru: Valgerður H. Bjarnadóttir, Hlynur Hallsson, Helgi Vilberg, Óðinn Svan Geirsson, Georg Hollanders og Guðmundur Beck.

„Það mættu hundrað manns síðara laugardag, fimm hundruð í gær og við stefnum á þúsund næsta laugardag,“ segir Guðrún að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.