ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Eilíf hola truflar viðskiptavini Mc Donald's

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:00 › 12. nóvember 2008
Holan umtalaða sem viðskiptavinir hafa orðið varir við

Holan umtalaða sem viðskiptavinir hafa orðið varir við

„Við erum alltaf að bæta ofan í holuna og steypa í þetta og allt. Það er eitthvað að gerast þarna undir,“ segir Magnús Ögmundsson, framkvæmdarstjóri Lystar ehf. sem rekur McDonald's á Íslandi. Við bílalúgu veitingastaðar keðjunnar í Smáranum í Kópavogi er djúp hola sem veldur viðskiptavinum sem versla þar umtalsverðum óþægindum. Þegar viðskiptavinurinn er búinn að taka við matnum í gegnum lúguna lendir bíllinn ofan í djúpri holu sem getur reynst ökutækjum skeinuhætt.

Magnús segir að á staðnum sé reynt eftir fremsta megni að fylla holuna af möl reglulega. „Kannski erum við ekki nógu duglegir að fara nægilega oft ofan í hana og það má kannski krítisera okkur fyrir það, en við vitum af henni og bætum reglulega ofan í hana en kannski ekki nógu oft.“

Magnús bendir á að annar veitingastaður hafi verið þarna áður en Mc Donald's opnaði. „Þarna var Popeyes áður en við opnuðum, staðurinn okkar á Suðurlandsbrautinni hefur aldrei verið malbikaður síðan hann opnaði fyrir fimmtán árum og það eru ekki djúp förin í honum. Við höfum miklar áhyggjur af þessari holu það er alveg satt.“ McDonald's segir að breytinga sé að vænta af hálfu fyritækisins vegna holunnar alræmdu og nú er stefnt að róttækri lagfæringu. „Við erum búin að tala við húseigandann og þeir eru búnir að panta mann sem ætlar að malbika yfir þetta sem allra fyrst,“ segir Magnús að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.