Að mati náttúruverndarsamtaka stendur jörðin frammi fyrir vistfræðilegri „lánakreppu“. Þetta kemur fram í skýrslunni Living Planet, sem unnin var sameiginlega af Zoological Society í Lundúnum og Global Footprint Network.
Í skýrslunni segir að ágangur heimsbyggðarinnar í náttúruauðlindir jarðar sé þriðjungi meiri en hún stendur undir. Bent er á að meira en þrír fjórðu hlutar mannkyns búi í löndum þar sem neysla fer langt fram úr endurnýjunargetu náttúrunnar og það geri íbúa þar að „vistfræðilegum skuldurum“. Til að standa undir neyslunni gangi þeir á ræktarland, skóga, höf og aðrar auðlindir annarra þjóða og taki jafnvel yfirdrátt.
Niðurstaða skýrslunnar er að ábyrgðarlaus neysla á „náttúrulegum höfuðstól“ stefni framtíðarhagsæld plánetunnar í voða með skýrum efnahagslegum áhrifum, til dæmis háu verði á matvælum, vatni og orku.
Tvær plánetur
„Ef kröfur okkar gagnvart plánetunni halda áfram að aukast á sama hraða og hingað til þyrftum við jafngildi tveggja plánetna til að standa undir lífsstíl okkar um miðjan fjórða áratuginn,“ sagði James Leape, forstjóri samtakanna World Wildlife Fund.
Dan Barlow, yfirmaður hjá Skotlandsdeild samtakanna, tekur undir áhyggjur Leapes: „Á meðan fyrirsagnir í fjölmiðlum halda áfram að skírskota til efnahagsólgunnar kastast jörðin sífellt nær vistfræðilegu hruni.“
Vistfræðilegt fótspor er hugtak sem notað er til að skýra stærð þess haf- og landsvæðis sem maðurinn þarfnast með tilliti til þeirra auðlinda sem hann nýtir og til að losna við úrgang.
Þær þjóðir sem setja stærstu vistfræðilegu fótsporin á plánetuna eru Bandaríkin og Kína. Samtals bera Bandaríkin og Kína ábyrgð á um fjörutíu prósentum af þeirri úttekt sem vistkerfi jarðar verður fyrir. En miðað við höfðatölu eru vistfræðilegu fótsporin stærst hjá Bandaríkjamönnum og íbúum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Minnst eru þau hins vegar hjá Malaví og Afganistan.
Efnahagskreppan bliknar í samanburði
Vistfræðilegt fótspor Bretlands er það fimmtánda stærsta í heimi hér. Það er um 5,3 hektarar á hvern íbúa landsins, meira en tvöfalt stærra en sá 2,1 hektari sem útreikningar sýna að sé tiltækur fyrir hvern jarðarbúa.
Að sögn World Wildlife Fund samsvarar vistfræðilegt fótspor Bretlands samanlögðum vistfræðilegum fótsporum þrjátíu og þriggja Afríkuríkja.
„Atburðir undanfarinna mánaða hafa sýnt okkur hve afskaplega heimskulegt það er að lifa um efni fram,“ sagði Emeka Anyaoku, forseti World Wildlife Fund. „Eins hrikalegt og hrun lánamarkaðanna hefur verið er það ekkert í samanburði við vistfræðilegu kreppuna sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði hann. Að mati Anyaoku blikna þær rúmlega tvær trilljónir bandaríkjadala sem tapast hafa á hlutabréfamarkaðinum við hliðina á náttúruauðlindum, sem eru allt að 4,5 trilljarða bandaríkjadala virði, sem eyðilagðar eru ár hvert.
kolbeinn@dv.is





Madonna fær ekki krónu fyrir að koma fram á Super Bowl
Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi