Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Eftir stíf fundarhöld í nótt hefur verið ákveðið að Fjármálaeftirlitið skipi skilanefnd sem leysir stjórn Landsbankans af hólmi. Starfsemi bankans verður með hefðbundnu sniði í dag, það er gagnvart almennum starfsmönnum og viðskiptavinum. Þá verða öll útibú bankans opin.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði í samtali við RÚV í morgun að samstarf við stjórnendur bankans hefði gengið vel í nótt. Bankinn var í raun kominn í þrot þótt þrotaferlið væri í raun ekki farið af stað ennþá. En unnið verður að því á næstunni.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir