Annþór Kristján Karlsson tekur þátt í listsýningu sem miðar að því að veita innsýn í alla kima samfélagsins. Hann afplánar nú dóm á Litla-Hrauni fyrir líkamsárás en hefur nýtt fangavistina til að hætta fíkniefnaneyslu. Fyrsta verk Annþórs þegar hann losnar út verður að kaupa flugfar til Spánar þar sem hann ætlar að hefja nýtt líf.
„Áður hefði ég aldrei séð sjálfan mig fyrir mér í svona, að standa uppi á AA-fundum og láta gott af mér leiða. Ef ég ætlaði að láta eitthvað gott af mér leiða hér áður fyrr hefði það örugglega verið til þess að ég myndi græða eitthvað á því sjálfur. Og þá er ég ekki að tala um eins og maður græðir á því í AA, maður græðir á því að maður fær til baka, bara gleði. En ég hefði þurft að græða eitthvað fjárhagslega á því,“ segir Annþór Kristján Karlsson, fangi á Litla-Hrauni, í portrettverki listamannanna Ólafs Ólafssonar og Libiu Castro, Allir eru að gera allt sem þeir geta, sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
