ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.2° 7m/s S

Fæstir treysta Davíð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:09 › 28. október 2008
Traust landsmanna til Davíðs mælist litlu meira en fylgi Framsóknarflokksins.

Traust landsmanna til Davíðs mælist litlu meira en fylgi Framsóknarflokksins. DV-mynd Róbert

Níu af hverjum tíu landsmönnum treysta Davíð Oddssyni ekki til að gegna starfi seðlabankastjóra. Þetta eru niðurstöður skoðanakannanar sem unnin var fyrir fréttastofu Stöðvar 2.

Stuðningsmenn Davíðs eru í minnihluta innan allra flokka. Þannig treystir aðeins einn af hverjum hundrað kjósendum Vinstri-grænna Davíð til starfans en 21 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins sem Davíð veitti forstöðu í fjórtán ár. Enginn stuðningsmaður Frjálslynda fannst hins vegar sem treysti Davíð til starfsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?