Fullt var út úr dyrum á opnum borgarafundi í Iðnó sem fram fór í gærkvöldi. Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson flutti framsöguræðu kvöldsins og fór mikinn í ræðu sinni.
Hann gagnrýndi harðlega hvernig íslenskt samfélag væri, að enginn þyrfti að sæta ábyrgð á þeim hörmungum sem dynja nú yfir íslenskt efnahagslíf. Hann sagði alla geta flækst í vafasaman félagsskap og nefndi sem dæmi íslensk stjórnvöld sem hefðu tekið sér hlutverk kynningarfulltrúa íslensku bankanna. Einar sagði það speki frjálshyggjumannana sem hafa verið við stjórn undanfarin ár að gera ekki neitt. Nema kannski að stofna sérsveit ríkislögreglustjóra.
Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður var næst á mælendaskrá þar sem hún hvatti til aukinnar þátttöku kvenna í stjórnmálum. Hún fór hörðum orðum um ofurlaunastefnu síðustu ára og fékk mikla hylli.
Vilhjálmur Bjarnason sagðist hingað til hafa talið sig vera kapítalista, auðhyggjumann. Hann hafi viljað vera öðrum óháður og að þegar hann hafi átt afgangsfé hafi hann lagt það fyrir. „Þessi hlutabréfamarkaður hefur gjörsamlega brugðist mér.“ Vilhjálmur sagðist hafa spurt margra spurninga til að fá upplýsingar um stöðu og starfsemi fyrirtækja en engin svör fengið.





Spurningarnar sem Bjarni vill ekki svara
Sáralítið fékkst úr gjaldþrota félagi Stefáns
8 milljarða kúlulánaskuldir Ingvars afskrifaðar
Þriggja milljarða afskriftir hjá Magnúsi Ármann
108 milljónir Sigurjóns urðu að 566 milljónum