Aðstoðarmenn ráðherra boðuðu forsvarsmenn valinna fjölmiðla á fund í Háskóla Reykjavíkur á dögunum þegar óvissan var algjör í efnahagsmálum þjóðarinnar. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir að ekki hafi verið um leynifund að ræða. Umræðuefni hans er engu að síðu leyndarmál. Verið að veita okkur upplýsingar um hvað sé í gangi, segir ritstjóri Morgunblaðsins.
„Þetta voru bara svona almennar samræður. Maður ræðir þetta við fullt af fólki og það er ekki vaninn að gefa upp hvað fer fram í slíkum samtölum,“ segir Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, spurður um fund sem hann auk annarra aðstoðarmanna ráðherra boðuðu valda forsvarsmenn fjölmiðla á í Háskóla Reykjavíkur á dögunum.
Aðstoðarmennirnir boðuðu þá Þorstein Pálsson, ritstjóra Fréttablaðsins, Ólaf Stephensen, ritstjóra Morgunblaðsins, og Pál Magnússon útvarpsstjóra á sinn fund. Steingrímur og Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, voru í það minnsta viðstaddir. Báðir eru þeir þaulreyndir fjölmiðlamenn.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“