Finnur Sveinbjörnsson, nýr bankastjóri Kaupþings, var í viðskiptum við SPRON árið 2006. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svörum Finns við spurningalista sem Viðskiptablaðið lagði fyrir hann í nóvember árið 2006. Þá segir Finnur að versta fjárfesting hans hafi verið þegar hann keypti hlutabréf í deCODE. „Þótt útlitið sé tvísýnt um þessar mundir er ég ekki frá því að félagið eigi eftir að slá í gegn,“ sagði Finnur um deCODE.
Finnur var á þessum tíma bankastjóri Icebank, en hann hefur einnig verið framkvæmdastjóri Verðbréfaþings Íslands, nú Kauphallarinnar. Finnur sagði einnig að þó hann sé bankamaður, þá trúi hann rétt mátulega á seðlalausa þjóðfélagið, aðspurður hversu mikla peninga hann væri með veskinu.
Spurður hver hafi verið hans besta fjárfesting, sagði Finnur: „Gamaldags tjald úr segldúk og með gúmmíbotni sem við hjónin keyptum 1984. Það hefur reynst vel, er nánast óslítandi og aldrei slökum við betur á eða sofum betur en einmitt í þessu tjaldi úti í óspilltri náttúru,“ sagði Finnur, nýr bankastjóri Kaupþings, árið 2006.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir