„Við vorum að enda við að afbóka utanlandsferð. Ég og konan ætluðum að fara til Liverpool á fótboltaleik en erum hætt við að fara. Maður verður að halda í hverja krónu sem maður á. Eins og gengið hefur fallið er ekkert vit í því að fara til útlanda. Það eru þrjár vikur í ferðina en enginn veit hvernig gengið verður þá. Ég þori ekki að taka áhættuna,“ segir Árni Gunnar Ragnarsson, fjölskyldufaðir og forritari.
Eignin horfin vegna hækkana
Árni Gunnar flutti til heim til Íslands frá Svíþjóð fyrir um einu og hálfu ári ásamt fjölskyldu sinni. „Við keyptum hús þegar við komum heim. Sú eign er hreinlega farin. Lánið hefur hækkað gífurlega síðan þá.“ Þau hjónin tóku verðtryggt lán í íslenskum krónum. „Bankinn reyndi að pranga inn á okkur erlendu láni því það yrði miklu ódýrara á endanum en ég þakka guði fyrir að hafa ekki tekið það,“ segir Árni Gunnar.
Fjölskyldan átti áður hús í Svíþjóð. „Þar er fyrirkomulagið allt annað og engin verðtryggð lán. Við borguðum þar um 3,7 prósenta vexti af óverðtryggðu húsnæðisláni.“
Húsnæðislánið á Íslandi hefur haft alvarlegar afleiðingar á fjárhag fjölskyldunnar. „Þeir peningar sem við höfðum unnið okkur inn þessi rúmlega 11 ár sem við höfum búið saman hafa verið þurrkaðir út á 9 mánuðum,“ segir hann.
Breytt neyslumynstur
Árni Gunnar rekur forritunarfyrirtækið Zeus þar sem hann starfar ásamt tveimur öðrum forriturum. „Ég sé ekki fram á mikið verkefnaflæði í vetur. Allir eru að draga saman seglin. Þegar ég flutti frá Svíþjóð var allt á uppleið og fólk almennt bjartsýnt. Strikið hefur eiginlega legið niður á við síðan í efnahagslífinu.“ Hann segist þó reyna að leggja sitt af mörkum til að vinna gegn þenslunni og hefur haldið verðhækkunum fyrirtækisins í hófi.
Árni Gunnar hefur líkt og þeir sem hann umgengst breytt neyslumynstri sínu undanfarna mánuði. „Fólk er farið að kaupa öðruvísi í matinn og versla meira í Bónus. Ég held að flestir séu farnir að minnka við sig þar sem þeir geta.“
Fella niður tekjuskatt
Fyrirhuguð yfirtaka ríkisins á Glitni hefur ekki farið framhjá Árna Gunnari frekar en öðrum. „Ef mig misminnir ekki borgum við Íslendingar um 86 milljaða króna í tekjuskatt á ári. Hagnaður ríkisins við sölu miðað við gengið í gær [fyrradag] eru 115 milljarðar. Ef ríkið getur einhvern tímann selt þennan hlut í Glitni finnst mér að það ætti að nota hagnaðinn til þess að fella niður tekjuskatt á einstaklinga í heilt ár. Þá fengjum við eitthvað til baka af því sem við erum að blæða núna.“
Nánar um kreppuna í DV í dag.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir