Kjartan Gunnarsson þrætir nú fyrir að hafa meint Davíð Oddsson þegar hann talaði um sjálfhverfan og orðljótan leiðtoga.
Kjartan Gunnarsson, fyrrum bankaráðsmaður Landsbankans, hefur sent yfirlýsingu frá sér þar sem hann þvertekur fyrir að hafa verið að tala um Davíð Oddsson í ræðu sinni. Kjartan lýsti því að hann væri ekki óreiðumaður eins og Davíð hafði lýst honum. Á mbl.is er því lýst að Kjartans hafi sagt að hann ,,treysti engum manni betur fyrir framtíð sonar síns en Geir H. Haarde. Nú væru erfiðleikatímar og Ísland hefði einmitt leiðtogann sem það þyrfti, rólegan og yfirvegaðan mann sem ekki talaði í fyrirsögnum. Hins vegar þyrfti landið ekki leiðtoga, sem uppnefndi menn, léti mál snúast um sjálfan sig og kallaði fólk óreiðumenn. Samkvæmt upplýsingum (Morgun)blaðsins setti fundarmenn hljóða. Þegar Geir og Kjartan féllust í faðma í lok ræðu þess síðarnefnda, felldu margir fundarmenn tár."
Nú hefur Kjartan mótmælt því að hann hafi verið að sneiða að Davíð með því að lýsa því að landið þyrfti ekki á halda leiðtoga sem uppnefndi menn, léti mál snúast um sjálfan sig og kallaði fólk óreiðumenn.
DV hefur ekki heimildir um að aðrir núverandi eða fyrrverandi leiðtogar en Davíð Oddsson hafi notað orðið óreiðumenn um Kjartan og aðra í hans stöðu. Þá er alþekkt að Davíð hefur uppnefnt fólk.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir