Nokkur undrun er vegna viðskipti með Bakkavör Group hf. í dag. ELL 182 ehf., félag í eigu Bakkabræðranna Lýðs Guðmundssonar og Ágústs Guðmundssonar, keypti 39,629% eignarhlut í félaginu af móðurfélaginu Exista. Verðið í viðskiptunum er 9,79 krónur á hlut en það er síðasta dagslokagengi í Bakkavör. október. Lýður er stjórnarformaður BakkavörGroup og Ágúst er stjórnarmaður og forstjóri félagsins. Bræðurnir eru allt í kringum borðið í þessum viðskiptum og talið er að rannsókn muni fara fram á viðskiptunum og þá kannski vegna þess að hluturinn var ekki boðinn öðrum til kaups. ,,Þetta er dæmi um það írafár sem er í íslensku viðskiptalífi í dag," sagði verðbréfasali sem DV ræddi við í dag. ,,Þetta tilfelli er vafasamt vegna þess að bræðurnir eru stjórnarformenn í báðum félögunum, Bakkavor og Exista," segir hann.
Bakkabræður bjarga Bakkavör
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða