ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

300 milljónir fyrir Lárus

20:31 › 31. janúar 2008
None

Glitnir borgaði Lárusi Welding, forstjóra bankans, 300 milljónir króna ef hann myndi ráða sig til bankans þegar Bjarni Ármannsson lét þar af störfum. Sjálfur fékk Bjarni 100 milljónir króna þegar hann hætti hjá fyrirtækinu í apríl á síðasta ári. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Auk þess sem Bjarni hlaut í starfslokagreiðslur námu laun hans þann tíma sem hann var við störf á síðasta ári um 90 milljónum króna. Þar ofan á bætast við 381 milljón króna sem hann hagnaðist um vegna forkaupsrétt á hlutabréfum.

Í þessari viku var uppgjör Glitnis fyrir síðasta ár kynnt. Þar kom fram að Glitnir hefði hagnast um 27,7 milljarða króna á árinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.