Spurning / Fullyrðing
Afstaða mín
1
Forseti Íslands á að taka virkan þátt í stjórnmálum og opinberum ákvörðunum
2
Málskotsréttur forseta Íslands er öryggisventill svo að fólkið í landinu geti haft lokaorðið um stærstu og umdeildustu málin
3
Forsetinn á aðeins að vísa málum til þjóðaratkvæðagreiðslu ef ákveðið hlutfall kjósenda hefur skorað á hann
4
Forseti Íslands á að gefa upp afstöðu sína til umdeildra mála
5
Það skiptir máli að forseti Íslands sé femínisti
6
Það skiptir máli að forseti Íslands sé kona
7
Það er mikilvægt að embætti forseta Íslands verði settar skýrar siðareglur
8
Hámark á að vera á því hversu mörg kjörtímabil forsetinn getur setið í embætti
9
Forseti Íslands á að vekja athygli á málum sem þingmenn og ráðherrar sinna ekki
10
Forsetinn á alltaf að starfa og tala í samræmi við stefnu meirihluta Alþingis
11
Forsetinn á alltaf að starfa og tala í samræmi við utanríkisstefnu Íslands
12
Hvar staðsetur þú þig hefðbundnum hægri-vinstri ás stjórnmála?
13
Hversu sammála eða ósammála ertu ákvörðun sitjandi forseta um að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2004?
14
Hversu sammála eða ósammála ertu ákvörðun sitjandi forseta um að synja Icesave-samningnum í fyrra skiptið?
15
Hversu sammála eða ósammála ertu tillögu stjórnlagaráðs um að forseti eigi að kalla saman og setja Alþingi ef þriðjungur þingmanna fer fram á það?
16
Hversu sammála eða ósammála ertu því forseti Íslands leyfi þjóðinni að fylgjast með hversdagslífi sínu, svo fremi sem hægt er?
17
Hversu sammála eða ósammála ertu því að forseti Íslands haldi þeirri reglu að greina frá öllum fundum sínum opinberlega?
18
Til hvers af forsetum Íslands lítur þú helst sem fyrirmyndar?
19
Hversu sammála eða ósammála ertu ákvörðun sitjandi forseta að hafna Icesave-samningnum í seinna skiptið?
20
Ertu hlynnt/ur eða andvíg/ur aðild Íslands að Evrópusambandinu?
21
Hversu sammála eða ósammála ertu því að forseti Íslands geti látið leggja fram lagafrumvörp á Alþingi?
22
Hversu gott eða slæmt er að forseti Íslands hafi starfað í stjórnmálaflokki áður?
23
Hvort á forseti Íslands eða forsætisráðherra að hafa vald til að rjúfa þing?
24
Hversu sammála eða ósammála ertu því að valdheimildir forseta Íslands í stjórnarskrá hafi verið vannýttar fram að þessu?