fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Valkyrja óttast annan bloggara: „Ég þori ekki út ein lengur“

Segir konuna hafa gengið svo fast á sig að hún hafi næstum dottið

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 9. febrúar 2018 09:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Synir Valkyrju voru með henni þegar hún segir konuna hafa gengið á sig með afli.
Synir Valkyrju Synir Valkyrju voru með henni þegar hún segir konuna hafa gengið á sig með afli.

Valkyrja Sandra Ásdísardóttir Bjarkadóttir, þriggja barna móðir, snappari og bloggari, stendur nú í útistöðum við annan bloggara. Valkyrja segist vera hrædd um sig og börn sín. „Ég þori ekki ein út lengur. Ég veit ekki hvað henni dettur í hug að gera næst,“ segir Valkyrja.

Hún kynntist konunni þegar hún skrifaði á bloggsíðu í hennar eigu. Samstarfinu lauk með hvelli og segist Valkyrja óttast konuna. Í vikunni mætti hún síðan konunni í Hagkaupum og segir Valkyrja að konan hafi vísvitandi gengið á hana svo hún datt næstum á ilmvatnsstand. Valkyrja var með tvo syni sína, sex ára og fjögurra mánaða, að versla.

Karen Hrund, vinkona Valkyrju og þekktur snappari, var með Valkyrju í verslunarleiðangrinum. Karen hefur einnig lent í útistöðum við konuna. Hún sagði frá því í viðtali við DV fyrr á árinu. Karen segir konuna hafi hótað henni bæði ofbeldi og lögsókn.

Eins og fyrr segir óttast Valkyrja, að eigin sögn, um öryggi sitt og barnanna. Valkyrja segir að þegar hún kynntist fyrst konunni hafi hún verið algjörlega undir stjórn hennar. Hlýtt henni í einu og öllu, en hún segir konuna sífellt hafa hótað að „hún yrði ekkert án hennar.“

„Hún stjórnaði öllu“

Valkyrja byrjaði að blogga hjá konunni í október í fyrra. „Ég mátti ekki setja inn færslur sjálf, heldur þurfti ég að senda henni svo hún gæti ritskoðað. Mér þótti það undarlegt.“

Valkyrja segir ekki hafi liðið á löngu þar til konan hafi náð tökum á henni. „Hún átti heimilislífið mitt. Hún stjórnaði öllu. Ég átti að hætta með barnið á brjósti til þess að vera bloggari. Það var alls konar svona sem kom upp á. Hún er rosalega frek. Ég átti sífellt að koma til hennar í heimsókn á kvöldin og átti erfitt með að komast svo frá henni. Á þessum tíma þekkti ég hana ekki neitt. Þetta var kona sem leið illa og ég sat mörgum klukkustundum saman og hlustaði á hana. En í raun var hún bara að baktala og ljúga upp á fólk, sérstaklega aðra snappara.“

Synir Valkyrju voru með henni þegar hún segir konuna hafa gengið á sig með afli.
Synir Valkyrju Synir Valkyrju voru með henni þegar hún segir konuna hafa gengið á sig með afli.

Opinbert rifrildi

Rifrildi Karenar Hrundar og konunnar vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og innan snapsamfélagsins. Valkyrja segir að það hafi byrjað að renna á hana tvær grímur. „Það sem Karen var að segja var alveg satt. Ég var með konunni í nokkrum verslunum þegar hún talaði illa um Karen við starfsfólk. Hún getur ekki þrætt fyrir það, ég stóð við hliðina á henni þegar hún baktalaði hana,“ segir Valkyrja.

Í kjölfarið ræddi Valkyrja við Karen um málið og hætti að blogga hjá konunni. Valkyrja segist hafa hætt í góðu. „Ég sagði að þetta væri ekki alveg fyrir mig og að ég ætlaði að leita á önnur mið. Hún brjálaðist og hótaði að drepa sig. Ég hringdi í lögregluna og lét vita af manneskju í sjálfsmorðshugleiðingum. Hún tók svo mynd af lögreglubílnum fyrir utan heima hjá sér og setti á Snapchat. Þessi mynd vakti mikla athygli. Margir töldu lögregluna vera þarna vegna Karenar, en hún hafði hótað Karen lögsókn,“ segir Valkyrja.

„Ég hef aldrei lent í svona vitleysu í lífi mínu, að einhver hóti að drepa sig því ég hætti að blogga hjá þeim.“

Vildi að hún tæki færslurnar út

Valkyrja segir að hún hafi þurft að „blokka“ konuna á öllum samfélagsmiðlum til að fá frið frá henni. „Eftir að ég blokkaði hana var hún ekki til fyrir mér. Ég sendi henni svo vefpóst um að taka út færslurnar mínar af bloggsíðunni hennar. Það er ólöglegt að hún haldi þeim, ég er búin að athuga það. Ég hef sent henni nokkra pósta en aldrei fengið svör,“ segir Valkyrja.

„Ég sá hana fara inn í verslun fyrir nokkrum dögum og ákvað að bíða fyrir utan til að ná tali af henni. Eftir það skrifaði hún færslu á Facebook um að ég hefði ráðist á hana, sem er ekki rétt. Ég sat á bekk fyrir utan verslunina og þegar hún kom út spurði ég hana hvort ég þyrfti í alvöru lögfræðing til að fá hana til að eyða færslunum mínum. Þá sagði hún fyrir framan tólf ára son sinn að ég væri ein mesta rotta sem hún hefði kynnst. Ég spurði hana hvort hún ætlaði í alvöru að kalla mig rottu fyrir framan son sinn og bað hana aftur um að taka færslurnar mínar út. Þetta endaði með því að hún öskraði á mig að hún væri með barnið sitt og ég ætti að láta hana í friði. Ég gekk þá í burtu.“

Segist vita um fólk í sömu stöðu

Eftir þetta atvik ræddi Valkyrja um konuna á Snapchat aðgang sínum en segist ekki hafa nefnt hana á nafn. Margir þekkja hins vegar til rifrildis Karenar og konunnar og vita hvar Valkyrja var að blogga. Í kjölfarið fékk hún fjölda skilaboða frá fólki sem sagðist einnig „hafa lent í“ konunni að sögn Valkyrju.

„Ein ung stúlka segir mér að móðir hennar hafi lent í konunni og orðið fyrir svipuðu áreiti og Karen,“ segir Valkyrja.

Nýr bloggari

Valkyrja segir að nýr bloggari sé byrjaður á bloggsíðu konunnar. „Nýi bloggarinn var að tala um mig á Snapchat og sagði eitthvað bull um mig sem er ekki satt. Eina sem ég gerði var að vara hana við að byrja ekki að blogga hjá konunni. Ég var samt ekki sú eina, ég veit til þess að fullt af fólki varaði hana við að blogga ekki hjá konunni. Hún segir sjálf í færslu sinni á bloggsíðunni að tvær vinkonur hennar hafi reynt að koma í veg fyrir að hún myndi byrja að blogga þarna.“

„Ég og maðurinn minn þurftum að sitja með eldri stráknum mínum í nokkrar klukkustundir og útskýra fyrir honum hvað væri að þessari konu,“ segir Valkyrja.
Hjón „Ég og maðurinn minn þurftum að sitja með eldri stráknum mínum í nokkrar klukkustundir og útskýra fyrir honum hvað væri að þessari konu,“ segir Valkyrja.

Rifrildi í Hagkaupum

Eins og áður segir fóru Valkyrja og Karen í Hagkaup á miðvikudaginn þegar upp úr sauð að þeirra sögn.

„Konan var einnig í búðinni fyrir tilviljun. Hún gekk að okkur og vísvitandi beint á Karen og rykkti öxlinni í hana, síðan mig. Ég var með kerru sem yngri strákurinn minn var í og leiddi hinn strákinn. Hún gekk svo fast á mig að ég datt næstum því á ilmvatnsstand. Hún sagði við mig: „Voðalega er upp á þér typpið.“ Sex ára sonur minn horfði á mig og sagði: „Mamma, þú ert ekkert með typpi“,“ segir Valkyrja og heldur áfram:

„Ég fór á búðarkassann og borgaði. Þegar við vorum komnar út í bíl kom hún út í sinn bíl á eftir okkur. Hún byrjaði að taka okkur upp á myndband. Karen spurði hana hvort henni fyndist þroskað af fullorðinni konu að ganga utan í fólk sem er með lítil börn. Hún sagði að við sætum um hana og hurðaði svo bílinn minn viljandi,“ segir Valkyrja.

„Ég og maðurinn minn þurftum að sitja með eldri stráknum mínum í nokkrar klukkustundir og útskýra fyrir honum hvað væri að þessari konu. Hann skildi þetta ekki, að konan hafi verið svona vond við mömmu sína,“ segir Valkyrja.

„Ég þori ekki ein út lengur. Ég veit ekki hvað henni dettur í hug að gera næst.“

Neitar að tjá sig

DV hafði samband við konuna til að heyra hennar hlið á málum.

„Ég má ekki tjá mig neitt þar sem ég er með kæru á hendur þeim báðum vegna ofbeldis í minn garð og sonar míns […] Það eru mörg kærumál í gangi og þið eruð búin að taka óbeint þátt í því líka,“ sagði hún og vísaði þá í viðtal DV við Karen Hrund.

Konan bað blaðamann um að ræða við lögfræðing sinn sem ætlaði að tjá sig fyrir hennar hönd. „Umbjóðandi minn hafnar með öllu þeim ásökunum sem á hana hafa verið bornar og eru mál hennar gagnvart viðkomandi einstaklingum í ferli. Hún mun ekki reka mál sín í fjölmiðlum,“ sagði Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður í samtali við DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“