fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Fjórar Hollywood kvikmyndir með Ólafi Darra væntanlegar í bíó á árinu

DV tók saman nokkra íslenska leikara og leikkonur sem hafa verið að gera það gott í Hollywood

Auður Ösp
Þriðjudaginn 13. febrúar 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fáir íslenskir leikarar hafa notið álíka velgengni í Hollywood og Ólafur Darri Ólafsson og er nú svo komið að hann starfar mestmegnis í Bandaríkjunum. Síðar á árinu verða frumsýndar fjórar Hollywood-kvikmyndir þar sem Ólafur Darri fer með hlutverk. Um er að ræða bandarísk-skosku spennumyndina Keepers, spennumyndina The Meg og ævintýramyndina Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald sem byggir á bók rithöfundarins J.K. Rowling og er framleidd af Warner Bros. Þá má ekki gleyma spennu-/gamanmyndinni The Spy Who Dumbed Me þar sem stórstjörnurnar Mila Kunis og Gillian Anderson fara með aðalhlutverkin.

DV tók saman nöfn nokkurra íslenskra leikara auk Ólafs Darra sem hafa verið að gera það gott í skemmtanabransanum vestanhafs undanfarin misseri. Greinina má finna í nýjasta helgarblaði DV.

Hera Hilmarsdóttir

Óhætt er að segja að frægðarsól Heru Hilmarsdóttur hafi risið ansi hratt undanfarin misseri. Árið 2012 hreppti hún lítið hlutverk í bresku stórmyndinni Anna Karenina, þar sem Keira Knightley og Jude Law fóru með aðalhlutverkin, og eftir það fór boltinn að rúlla.

Hera Hilmarsdóttir.
Hera Hilmarsdóttir.

Mynd: Marsý Hild

Hún fór með stórt hlutverk í ævintýraþáttaseríunni Da Vinci’s Demons og þá lék hún á móti Josh Hartnett og Ben Kingsley í myndinni The Ottoman Lieutenant. Því næst tók við hlutverk þjónustustúlkunnar Tönju í spennutryllinum An Ordinary Man þar sem Hera lék í annað sinn á móti Ben Kingsley. Þá var greint frá því í fyrra að Hera myndi fara með eitt af aðalhlutverkunum í Mortal Engines, nýjustu mynd Peters Jackson, sem gerði þríleikinn um Hringadróttinssögu og Hobbitann.

Darri Ingólfsson

Darri lærði leiklist í Bretlandi en hefur undanfarið ár búið og starfað í Englaborginni. Árið 2012 fór hann með aukahlutverk í þáttunum Last Resort, stórri framleiðslu á vegum ABC-sjónvarpsstöðvarinnar en þáttaröðin varð þó ekki langlíf og var framleiðslu hætt eftir aðeins 13 þætti. Nafn Darra rataði síðan í fréttir hérlendis árið 2013 þegar ljóst var að hann myndi fara með hlutverk geðtruflaða morðingjans Olivers Saxon í áttundu þáttaröðinni af Dexter. Hann hefur síðan þá komið fram í aukahlutverki í nokkrum sjónvarpsþáttaröðum vestra á borð við Haven, NCIS: Los Angeles, Criminal Minds auk þess sem hann er í stærri hlutverkum í þáttaröðunum Sequestered og The Originals.

Darri Ingólfsson.
Darri Ingólfsson.

Einar Gunnar Einarsson

Einar Gunnar, sem notast við listamannsnafnið Einar Gunn, hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarna þrjá áratugi og starfaði lengi vel í auglýsingabransanum áður en hann fór að starfa sem aukaleikari. Á síðustu tíu árum hefur hann landað fjölmörgum litlum hlutverkum í bandarískum sjónvarpsþáttum á borð við The Mysteries of Laura og The Blacklist auk þess sem hann fór með hlutverk prests í Michael J. Fox Show. Þá hefur hann einnig stigið á svið á Broadway í leikritinu A Man for All Seasons og farið með hlutverk í þættinum The Men Who Built America sem sýndur er á History Channel.

DV ræddi við Einar á síðasta ári en þá hafði hann landað litlu hlutverki í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Law and Order: Special Victims Unit.

Einar Gunnar Einarsson.
Einar Gunnar Einarsson.

„Það eru margir um hituna fyrir hvert hlutverk. Það eru yfirleitt um 500–2.000 umsóknir sem berast varðandi hvert hlutverk og af þeim komast yfirleitt 6–12 í prufur. Síðan komast tveir á lokastigið og einn hreppir hnossið. Líkurnar á að hreppa hlutverk eru því ekki miklar,“ sagði Einar aðspurður um samkeppnina í Hollywood. Næsta verkefni Einars er þó á íslenskri grundu en hann fer með hlutverk í væntanlegri kvikmynd leikstjórans Baldvin Z, Lof mér að falla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“