fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Menntun þekktra Íslendinga

Auður Ösp
Sunnudaginn 11. febrúar 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú til dags er ekki óalgengt að einstaklingar taki u-beygju í lífinu og skipti algjörlega um starfsvettvang eða ljúki námi í fleira en einu fagi. Margir máta sig við nokkur störf áður en ævistarfið er fundið eða státa af menntun sem hefur lítið sem ekkert með starf þeirra að gera. DV tók saman nöfn nokkurra þekktra Íslendinga sem hafa haslað sér völl í leiklist, tónlist, sjónvarpi, íþróttum og pólitík þrátt fyrir að hafa lokið námi á öðru og oft og tíðum gjörólíku sviði.

Leikkonan sem varð lögfræðingur

Helga Vala Helgadóttir hefur haslað sér völl sem hæstaréttarlögmaður síðustu ár og einbeitt sér sérstaklega að málum sem snúa að mannréttindum. Hún situr nú á þingi fyrir Samfylkinguna en færri vita að Helga Vala er einnig menntuð leikkona frá Leiklistarskóla Íslands. Hún fór með lítið hlutverk í gamanþáttunum Borgarstjórinn á síðasta ári en hefur að öðru leyti helgað sig pólitík og lögfræðistörfum. Leiklistarmenntunin hefur þó eflaust komið sér vel í þingpontunni og í dómsalnum.

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helgadóttir.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Skipuleggur skrifin í Excel

Yrsa Sigurðardóttir hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem metsöluhöfundur glæpasagna og seljast bækur hennar í bílförmum fyrir hver jól. Yrsa er einnig menntaður byggingarverkfræðingur og lét eitt sinn hafa eftir sér í viðtali að hún væri vön að setja söguþráð upp í Excel til að skipuleggja skrifin betur.

Yrsa Sigurðardóttir.
Yrsa Sigurðardóttir.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Margir hissa

Haukur Heiðar Hauksson er einna þekktastur sem söngvari einnar af ástsælustu hljómsveitum landsins, Diktu, sem illu heilli hefur legið í dvala í nokkurn tíma. Dagvinna Hauks er af allt öðrum toga en hann útskrifaðist frá læknadeild HÍ árið 2008 og lauk sérnámi í heimilislækningum árið 2015. Hann hefur síðan þá unnið sem læknir á Sólvangi á milli þess sem hann þenur raddböndin. Í samtali við Læknablaðið árið 2010 sagði hann marga reka upp stór augu. „Ég finn reyndar að mörgum kollegum mínum þykir ekkert að þessu, finnst það jafnvel flott og sannleikurinn er sá að margir í poppbransanum verða skrýtnari á svipinn þegar þeir heyra að ég er læknir. „Ertu líka læknir?“ spyrja þeir algjörlega gáttaðir.“

Naglbítur og heimspekingur

Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, hefur starfað sem tónlistar- og fjölmiðlamaður um árabil og sló fyrst í gegn sem söngvari rokksveitarinnar 200 þúsund naglbítar. Þá hefur hann undanfarin ár vakið athygli íslenskra barna á hinum ýmsu furðum alheimsins með Vísindabókum Villa. Það eru ekki allir sem vita að Villi er einnig með B.A.-gráðu í heimspeki og hefur sú menntun án efa komið sér vel við bókaskrifin.

Vilhelm Anton Jónsson.
Vilhelm Anton Jónsson.

Mynd: Gunnar Gunnarsson

Syngjandi hagfræðingur

Jón Jónsson er ein skærasta stjarnan í íslensku tónlistarlífi og hefur undanfarin ár heillað Íslendinga á öllum aldri upp úr skónum með grípandi lagasmíðum og heillandi sviðsframkomu. Jón er einnig með háskólagráðu í hagfræði frá Bandaríkjunum og hefur meðal annars nýtt menntunina með því að halda skemmtileg fræðsluerindi um fjármál fyrir ungt fólk.

Fór úr sálfræðinni yfir í sjónvarpið

Jón Ársæl Þórðarson þekkir hvert mannsbarn á Íslandi enda fastagestur á skjánum til fjölda ára. Þekktastur er hann fyrir viðtalsþættina Sjálfstætt fólk þar sem hann nær ávallt að draga fram einlægar og óvæntar hliðar á viðmælendum sínum. Þar kemur sér vel að Jón Ársæll er menntaður sálfræðingur og starfaði við fagið um árabil þar til hann leiddist út í fjölmiðlageirann.

Jón Ársæll Þórðarson.
Jón Ársæll Þórðarson.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hætti námi á öðru ári

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, hefur á undanförnum árum náð einstökum árangri á flugrekstrarmarkaðnum og hefur vöxtur fyrirtækisins verið með ólíkindum. Skúli var um tvítugt þegar hann hóf nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Um svipað leyti stofnaði hann hugbúnaðarfyrirtækið Oz ásamt Guðjóni Má Guðjónssyni og fljótlega átti reksturinn hug hans allan. Hann hætti því í námi á öðru ári og restina af sögunni þekkja allir.

Skúli Mogensen.
Skúli Mogensen.

Af leiksviði í HÍ

Stefán Hallur Stefánsson leikari hefur komið víða við á undanförnum árum og farið með fjölda burðarhlutverka í leikhúsi og sjónvarpi. Af leikritum má nefna Macbeth, Fjalla-Eyvind og Horft af brúnni og af kvikmyndum má nefna Djúpið og Rokland að ógleymdum sjónvarpsþáttunum Pressa og Réttur. Áður en Stefán hóf nám við leiklistardeild LHÍ tók hann örlitla u-beygju og stundaði nám í markaðs- og útflutningsfræðum við Háskóla Íslands en þaðan útskrifaðist hann árið 2002. Stefán Hallur hefur undanfarið starfað sem stundakennari við leiklistardeild Listaháskóla Íslands. DV greindi frá því í lok árs að hann hefði stigið til hliðar úr því starfi vegna metoo-byltingarinnar.

Stefán Hallur Stefánsson.
Stefán Hallur Stefánsson.

Sjúkraþjálfari á sjónvarpsskjánum

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kom fyrst fram á sjónarsviðið sem ungfrú Ísland árið 2003 og hefur síðan þá komið að gerð ótal þáttaraða, heimildamynda og sjónvarpsviðburða. Þá var hún nýlega ráðin aðstoðardagskrárstjóri RÚV. Menntun Ragnhildur liggur þó á allt öðru sviði en hún er með B.Sc.-gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.

Lagði dúka með pabba

Sigga Beinteins er eitt þekktasta nafnið í íslenskri dægurlagatónlist og varla er til sá landsmaður sem ekki þekkir smelli á borð við Eitt lag enn eða Vertu ekki að plata mig. Hæfileikar Siggu liggja á fleiri sviðum en hún lærði dúkalögn áður en hún haslaði sér völl sem söngkona og starfaði lengi vel við fagið við hlið föður síns.

Sigríður Beinteinsdóttir.
Sigríður Beinteinsdóttir.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Bergur Ebbi Benediktsson

Flestir þekkja Berg Ebba sem grínista en hann hefur slegið í gegn á uppistandssýningum með Mið-Íslandi auk þess sem hann hefur komið að handritsskrifum á sjónvarpsþáttum og nú seinast á áramótaskaupinu. Bergur Ebbi hefur einnig lokið námi í lögfræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hann er með mastersgráðu í stefnumótun og framtíðargreiningu frá Ontario College of Arts and Design í Kanada.

Bergur Ebbi Benediktsson.
Bergur Ebbi Benediktsson.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Úr boltanum í lögfræðina

Guðni Bergsson, eða Guðni Bergs, er flestum kunnugur sem fyrrverandi landliðsfyrirliði í knattspyrnu. Hann á að baki glæstan feril með Tottenham Hotspurs og síðan Bolton Wanderers en hann menntaði sig einnig samhliða knattspyrnuiðkuninni og er í dag sjálfstætt starfandi sem lögmaður.

Guðni Bergsson.
Guðni Bergsson.

Listrænn þingmaður

Halldóra Mogensen er fyrst og fremst þekkt sem þingkona Pírata og sem formaður velferðarnefndar Alþingis en hún er einn af fáum sitjandi þingmönnum sem búa yfir menntun á listasviðinu. Áður en leið hennar lá í þingsalinn hélt hún utan, 23 ára að aldri, og stundaði nám í fatahönnun og ítölsku við Scuola Lorenzo de Medici í Flórens á Ítalíu. Þá stundaði hún einnig nám í fatahönnun við Listaháskóla Íslands árið 2003.

Halldóra Mogensen.
Halldóra Mogensen.

Reiprennandi á frönsku

Að lokum má síðan nefna tvær af þekktustu leikkonum landsins, þær Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur og Brynhildi Guðjónsdóttur, en þær stöllur eiga meira sameiginlegt en listagyðjuna.

Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir.

Báðar útskrifuðust þær með B.A.-gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands áður en þær hófu leiklistarnám, Jóhanna Vigdís í Leiklistarskóla Íslands og Brynhildur í Guildhall School of Music and Drama í London.

Brynhildur Guðjónsdóttir.
Brynhildur Guðjónsdóttir.

Frönskukunnáttan átti eftir að koma sér vel fyrir Brynhildi þegar hún fór með hlutverk söngkonunnar Edith Piaf í samnefndu verki Þjóðleikhússins árið 2005.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla