fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Karen er 25 ára og vill ekki verða móðir í framtíðinni

Mætir fordómum – Frjósemi íslenskra kvenna aldrei minni

Auður Ösp
Miðvikudaginn 24. janúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum ekki öll gerð fyrir sömu hlutverk í lífinu, og það á við um öll hlutverk, líka foreldrahlutverkið,“ segir Karen Guðnadóttir, 25 ára, sem hefur kosið að sneiða hjá barneignum. Hún hefur fengið mismunandi viðbrögð við ákvörðun sinni og bendir á að enn í dag sé litið á móðurhlutverkið sem fyrsta og síðasta hlutverk kvenna í lífinu. Raunveruleikinn sé hins vegar sá að það sama henti ekki öllum og því eigi hver og einn rétt á að lifa lífinu á sínum forsendum. Bendir hún á að þrátt fyrir að jafnréttisbaráttan sé komin eins langt og raun ber vitni þá sé umræðan ennþá afar stöðnuð þegar kemur að konum og móðurhlutverkinu.

Umræðan að opnast

Hlutfall vestrænna kvenna sem kjósa að eignast ekki börn hefur farið síhækkandi undanfarin ár. Þannig hafa fjölmargar þekktar konur í Hollywood á borð við Jennifer Aniston, Cameron Diaz, Oprah Winfrey og Helen Mirren stigið fram opinberlega og sagt frá ákvörðun sinni um að hafna móðurhlutverkinu.

Leikkonan Helen Mirren er ein þeirra Hollywood-kvenna sem hafa talað opinskátt um þá ákvörðun sína að eignast ekki börn.
Sífellt algengara að kjósa barnleysi Leikkonan Helen Mirren er ein þeirra Hollywood-kvenna sem hafa talað opinskátt um þá ákvörðun sína að eignast ekki börn.

Sem dæmi má nefna að í Bandaríkjunum hefur hlutfall barnlausra kvenna farið úr 1 af hverjum 10 upp í 1 af hverjum 5 síðan árið 1970. Á Ítalíu er talið að fjórðungur kvenna hafni barneignum. Þá hefur fæðingatíðni í Danmörku hrapað svo mjög að ferðaskrifstofur hafa hrundið af stað auglýsingaherferðinni „Do it for Denmark“ þar sem barnlausum pörum er boðinn sérstakur afsláttur á hótelum og gistiheimilum með það að markmiði að þau muni geta þar barn.

Frjósemi kvenna minni en nokkru sinni fyrr

Líkt og fram kom í tölum Hagstofu Íslands í apríl síðastliðnum er frjósemi kvenna á Íslandi minni en nokkru sinni fyrr og fæddust færri börn árið 2016 en árið á undan. Þá heldur meðalaldur frumbyrja áfram að hækka og var 27,7 ár í fyrra. Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Árið 2016 var frjósemi íslenskra kvenna 1,75 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2015 var frjósemi 1,81 en það er næstlægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu. Frjósemi á Íslandi hefur þó verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum.

Í grein Eyjunnar frá árinu 2014 kemur fram að árið 2013 varð töluverð fækkun barnsfæðinga hérlendis frá árinu áður. Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir þar að ástæðuna fyrir minnkandi frjósemi og hækkandi meðalaldri mæðra megi rekja til þeirra efnahags- og lagabreytinga sem hafa átt sér stað í þjóðfélaginu á síðustu árum.
Breytingar í þjóðfélaginu Í grein Eyjunnar frá árinu 2014 kemur fram að árið 2013 varð töluverð fækkun barnsfæðinga hérlendis frá árinu áður. Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir þar að ástæðuna fyrir minnkandi frjósemi og hækkandi meðalaldri mæðra megi rekja til þeirra efnahags- og lagabreytinga sem hafa átt sér stað í þjóðfélaginu á síðustu árum.

Frelsið dýrmætt

Í nóvember 2015 ræddi DV við fjórar íslenskar konur um þá ákvörðun þeirra að sneiða hjá barneignum. Ein af þeim er Björk Úlfarsdóttir sem sagði metnað sinn í námi og starfi vera helstu ástæðuna fyrir því að hún kjósi að sleppa barneignum.

„Mín helsta ástæða fyrir að vilja ekki eignast börn er að mín framtíðarsýn hefur alltaf beinst fyrst og fremst að frama mínum. Ég hef alltaf séð fyrir mér að vera mjög metnaðarfull gagnvart framtíðarvinnunni minni og finnst börn einfaldlega ekki passa inn í þá mynd. Síðan eru börn að sjálfsögðu dýr í rekstri en eru þó ekki metin til fjár fyrir foreldrana en ég hef alltaf hugsað mér að eyða peningunum í eitthvað annað. Auk þess er gríðarlega mikil ábyrgð sem fylgir því að ala upp einstakling og ég hreinlega get ekki hugsað mér að koma með manneskju inn í þennan heim.“

Líkt og fram kom í tölum Hagstofu Íslands í apríl síðastliðnum er frjósemi  kvenna á Íslandi minni en nokkru sinni fyrr og fæddust færri börn árið 2016 en árið á undan.
Fæðingartíðni fer lækkandi Líkt og fram kom í tölum Hagstofu Íslands í apríl síðastliðnum er frjósemi kvenna á Íslandi minni en nokkru sinni fyrr og fæddust færri börn árið 2016 en árið á undan.

Mynd: 123rf.com

Mikilvægt að treysta á innsæið

Karen og eiginmaður hennar, Stefán Már Jónasson, hafa verið gift í sex ár og eru í dag búsett í smábæ í suðurhluta Danmerkur. Karen kveðst í raun alltaf hafa vitað að móðurhlutverkið hentaði henni ekki en nýlega tjáði hún sig um ákvörðun sína í pistli á vef knuz.is. Í samtali við dv.is segir hún það í raun sorglegt að það sé fréttaefni að kona kjósi að eignast ekki börn en það sé til marks um þann hugsunarhátt sem ríki í samfélaginu.

Aðspurð segir hún viðbrögð fólks við ákvörðun hennar aðallega lýsa sér í undrun og hneykslunarsvip. Einstaklingar af yngri kynslóðinni séu þó móttækilegri fyrir þessum hugsunarhætti en þeir sem eldri eru.

Spurningar á borð við „En hver á að sjá um þig í ellinni?“ eru algengar en Karen segir það fáránlegan rökstuðning fyrir barneignum.

Karen og eiginmaður hennar, Stefán Már Jónasson, hafa verið gift í sex ár og kjósa að vera tveggja manna fjölskylda.
Sátt við lífið Karen og eiginmaður hennar, Stefán Már Jónasson, hafa verið gift í sex ár og kjósa að vera tveggja manna fjölskylda.

„Þarna er ég í raun að dæma hugsunarhátt annarra en í raun verð ég að gera það í þessu tilviki. Það er til dæmis ekki sjálfsagt þegar þú eignast barn að það muni lifa lengur en þú. Eins er það ekki sjálfsagt að ég eigi sjálf eftir að vera gömul. Ég gæti dáið á morgun. Framtíðin er svo óútreiknanleg og við vitum aldrei hvað getur gerst.“

Eins er algengt að þeir sem kjósa barnleysi fái að heyra að þeir séu að missa af stórkostlegri lífsreynslu. Karen bendir á að það sé margt annað sem hægt er að fara á mis við í lífinu heldur en barneignir.

„Málið er líka það að þú getur ekki saknað einhvers sem þú hefur aldrei átt. Það er líka hægt að eiga börn og sjá eftir því. Þess vegna verður þú að treysta á innsæi þitt hvað þetta varðar, treysta á sjálfan þig í nútímanum.

„Þú getur ekki saknað einhvers sem þú hefur aldrei átt. Það er líka hægt að eiga börn og sjá eftir því. Þess vegna verður þú að treysta á innsæi þitt hvað þetta varðar, treysta á sjálfan þig í nútímanum.“

Samfélagslegur heilaþvottur

„Einu sinni líkti ég barneignum við dóp. Þá var horft á mig með augum eins og ég væri bara ég veit ekki hvað. Ástæðan fyrir samlíkingunni er sú að dóp og barneignir eru eitthvað sem þú getur ekki prófað og svo hætt við. Í raun eru barneignirnar meiri skuldbinding, því maður hefur heyrt sögur af fólki sem fer í árangursríka meðferð við fíkn. Það er ekki hægt að skila barninu ef þér líkar ekki foreldrahlutverkið.

Verstu viðbrögðin sem ég hef fengið voru frá barni sem spurði mig hvort að ég hataði börn. Þarna upplifði ég þennan samfélagslega heilaþvott.“

Aðpurð segir Karen viðbrögð fólks við ákvörðun hennar aðallega lýsa sér í undrun og hneykslunarsvip. Einstaklingar af yngri kynslóðinni séu þó móttækilegri fyrir þessum hugsunarhætti en þeir sem eldri eru.
Yngri kynslóðin skilningsríkari Aðpurð segir Karen viðbrögð fólks við ákvörðun hennar aðallega lýsa sér í undrun og hneykslunarsvip. Einstaklingar af yngri kynslóðinni séu þó móttækilegri fyrir þessum hugsunarhætti en þeir sem eldri eru.

Þá segir hún það annan algengan misskilning hjá fólki að konum sem vilji ekki verða mæður hljóti að vera illa við börn. Hjá henni er það andstætt.

„Mér finnst náttúran yndisleg og skil fegurðina á vexti fósturs í móðurkviði þótt ég vilji ekki upplifa það sjálf. Engin tvö eru eins, það kennum við börnunum, en í vissum hlutum þrýstum við tilteknum viðhorfum upp á samfélagið.“

Karen bendir einnig á hvað þrýstingur samfélagsins varðandi barneignir getur verið særandi, þá sérstaklega fyrir þá sem vilja eiga börn en geta það ekki.

„Að benda pörum eða einstaklingum á að það sé kominn tími á þau eða að segja setningar á borð við „hvenær ætlið þið svo að koma með eitt kríli?“ eru þær leiðinlegustu, sorglegustu og fáránlegustu sem ég hef upplifað. Lífið er ekki einhver röð af hlutum sem við eigum að gera. Í fyrsta lagi: Þú gætir verið að spyrja einhvern sem hefur nýlega misst fóstur eða langar í barn og getur það ekki af ýmsum ástæðum. Í öðru lagi: Þetta er mjög persónulegt og kemur þér ekki við.“

Hún segir mikilvægt að láta ekki aðra hafa áhrif á val sitt. „Þetta er þitt líf og ef þínar ákvarðanir særa ekki aðra þá skil ég ekki af hverju þú mátt ekki bara fara þá leið sem þú vilt í lífinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig