fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Hinn kvensami Jóhann Karl

Bók um Spánarkonung vekur umtal – Sagður hafa átt þúsundir ástkvenna

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 23. september 2017 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný bók um Jóhann Karl, fyrrverandi Spánarkonung, opinberar hann sem blygðunarlausan flagara sem átt hefur í áratugi vingott við þúsundir kvenna. Höfundur bókarinnar, Amado Martinez, fyrrverandi hershöfðingi, segist hafa stuðst við leyniskjöl við samningu bókarinnar. Einhverjum kann að þykja fullyrðingar um að konungurinn hafi átt þúsundir ástkvenna ýkjukenndar, en ævisagnahöfundurinn fullyrðir að þar sé ekkert ofsagt. Hann segir að þegnar ríkisins eigi rétt á því að vita af svefnherbergissiðum konungs.

Fyrir þremur árum afsalaði Jóhann Karl krúnunni til sonar síns, Felipe. Stuðningur við konungsdæmið var þá einungi 30 prósent, en er nú kominn upp í 61 prósent, þökk sé Felipe og eiginkonu hans, Letiziu. Jóhann Karl hafði þurft að þola vaxandi óvinsældir síðustu árin sem hann ríkti vegna eyðslusemi og lauslætis. Árið 2012 var upplýst að á sama tíma og landsmenn hans glímdu við alvarlega efnahagskreppu hefði hann verið á fílaveiðum í Botsvana með þýskri ástkonu.

Enginn fyrirmyndar eiginmaður

Hin nýja ævisaga hefur aftur sett kvennafar konungsins í kastljósið. Hann hefur einnig sést opinberlega með Mörtu Gaya, vellauðugri fráskilinni konu, sem hefur ekki orðið til að minnka áhuga fjölmiðla á kvennamálum hans. Lengi hefur verið vitað að Jóhann Karl væri enginn fyrirmyndareiginmaður. Hann kvæntist hinni grísku Sofiu árið 1962 og saman eiga þau þrjú börn, Elenu, Cristinu og Felipe. Konungurinn er síðan sagður eiga tvö börn utan hjónabands.

Jóhann Karl varð konungur Spánar árið 1975 og Sofia er sögð hafa komið að honum með leikkonu nokkrum mánuðum síðar. Hún brást skiljanlega ekki vel við. Jóhann Karl er óseðjandi kvennamaður og gerðist til dæmis ítrekað nærgöngull við Díönu prinsessu þegar hún var í sumarleyfi á Spáni árið 1986 ásamt eiginmanni sínum og syni. Díana sagðist kunna vel við konunginn, en sagði óþægilegt hversu mjög hann hefði lagt sig eftir því að snerta hana.

Fjölskylduharmleikur

Jóhann Karl fæddist á Ítalíu þar sem fjölskylda hans var í útlegð. Faðir hans var sonur Alfonso XIII sem var síðasti konungur Spánar áður en konungdæmið var afnumið og Franco varð einræðisherra. Jóhann Karl kom til Spánar árið 1947 til að stunda nám. Árið 1956 var Jóhann Karl, þá átján ára gamall, í páskafríi á heimili fjölskyldunnar í Portúgal. Bróðir hans, hinn fimmtán ára gamli Alfonso, hljóp inn í herbergi til að heilsa bróður sínum. Sagan segir að Jóhann Karl hafi verið að leika sér með byssu sem Franco hafði gefið honum. Skot hljóp úr byssunni og varð Alfonso að bana. Að sögn starfsmanns hallarinnar hafði Jóhann Karl, sem vissi ekki að byssan var hlaðin, beint henni að bróður sínum og tekið í gikkinn.

Á valdaárum Franco stóð Jóhann Karl iðulega við hlið hans við opinberar athafnir og bar lof á hann. Hann átti þó einnig leynifundi með stjórnarandstöðuleiðtogum. Franco skellti skollaeyrum við viðvörunarröddum ráðgjafa sinna sem sögðu Jóhann Karl ekki vera traustan bandamann. Eftir dauða Franco tók Jóhann Karl við endurreistu konungdæmi. Árið 1981 flutti hann sjónvarpsávarp til að kæfa í fæðingu yfirvofandi valdarán hersins. Þar átti hann sína glæstustu stund og honum er þakkað að valdaránstilraunin rann út í sandinn. Jóhann Karl naut vinsælda meðal þegna sinna sem töldu hann umbótasinnaðan mann. Eiginkona hans, Sofia, er hins vegar afar íhaldsöm, andstæðingur fóstureyðinga og mótfallin hjónabandi samkynhneigðra. Jóhann Karl og eiginkona hans sjást saman við opinberar athafnir en hjónabandið er einungis að nafninu til.

Vildi ekki láta soninn bíða of lengi

Árið 2014 afsalaði Jóhann Karl sér krúnunni, 76 ára gamall, til sonar síns, Felipe. Hann er sagður hafa sagt að hann vildi ekki að sonur sinn yrði að bíða jafn lengi eftir að verða konungur og Karl Bretaprins. Skoðanakannanir sýndu að meginþorri landsmanna var sáttur við þá ákvörðun hans. Felipe og eiginkona hans, Letizia, sem er fyrrverandi sjónvarpsþulur, njóta mikilla vinsælda meðal þegna sinna. Það sama á ekki við um systur Felipe, Christinu. Hún og eiginmaður hennar, Inaki Uranngarin, voru ákærð fyrir skattsvik og fjárdrátt. Christina var sýknuð en Inaki var dæmdur í sex ára fangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“