Það var margt um manninn, handagangur í öskjunni og biðröð út á bílastæði þegar ný verslun Lindex var opnuð í Krossmóa í Reykjanesbæ í lok júlí. Félagið Heilavernd naut góðs af opnunardeginum, en 10% af söluandvirði þann daginn rann til félagsins. Það var starfsfólk verslunarinnar sem valdi styrkþegann.
Félagið Heilavernd var stofnað árið 1986 af aðstandendum fólks með arfgenga heilablæðingu. Félagið safnar fé til að styrkja rannsóknir á arfgengri heilablæðingu, en um er að ræða séríslenskan erfðasjúkdóm.
Á hestbaki Lína langsokkur er langsterkust.
Mynd: Mummi Lú
Náðist að opna verslunina hálfum mánuði fyrr en til stóð, þar sem framkvæmdir gengu mun betur en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Viðtökur við nýju versluninni fóru líka langt fram úr væntingum eigenda, en um 10% íbúa Suðurnesja mættu. „Það er eitthvað sem við getum ekki verið annað en þakklát fyrir,“ segir Albert Magnússon, eigandi Lindex á Íslandi.
Skandinavískt yfirbragð Verslunin byggir upp á nýrri innréttingahönnun Lindex, sem byggir á björtu yfirbragði, ólíkum litbrigðum hvítra lita og svartra auk viðar sem gefur versluninni skandinavískt yfirbragð.
Mynd: Mummi Lú
Poppar sig upp Þessi ungi maður beið þolinmóður eftir poppi.
Mynd: Mummi Lú
Brugðið á leik Það er gaman að bregða á leik, máluð og fín.
Mynd: Mummi Lú
Smellt af Það er snilld að smella af mynd og senda á þann sem ekki komst með.
Mynd: Mummi Lú
Vinkonur þrjár Sumarlegar og sætar með andlitsmálun.
Mynd: Mummi Lú
Andlitsmálun Bæði ungir sem aðeins eldri nýttu sér tækifærið og fengu andlitsmálun.
Mynd: Mummi Lú
Blöðrur í boði Þessi ungi maður fékk blöðrur.
Mynd: Mummi Lú
Úllen dúllen doff Þegar úrvalið er mikið getur verið vandi að ákveða sig.
Mynd: Mummi Lú
Í stíl Þessar vinkonur voru hressar og kátar og í stíl.
Mynd: Mummi Lú
Ánægð með daginn Eigendurnir, Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, voru alsælir með viðtökurnar á opnunardeginum.
Mynd: Mummi Lú
Poppþrenna Poppaðir strákar með popp í poka.
Mynd: Mummi Lú
Rennibraut Leiktæki fyrir börnin eru staðalbúnaður á opnunarhátíðum og börnin skemmtu sér konunglega.
Mynd: Mummi Lú
Kjarakaup Þessi unga dama var hæstánægð með kaup dagsins, kannski leynast skólaföt fyrir veturinn í pokanum.
Mynd: Mummi Lú