fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Blæbrigði Doddu Maggýjar

Fyrsta einkasýning listamannsins

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 31. ágúst 2017 08:30

Fyrsta einkasýning listamannsins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndlistarkonan og tónskáldið Dodda Maggý opnaði nýlega sína fyrstu einkasýningu í BERG Contemporary við Klapparstíg. Verk Doddu Maggýjar hafa verið sýnd víða bæði á Íslandi og erlendis. Fjöldi góðra gesta mætti á opnunina, en sýningin stendur til 21. október næstkomandi.

David Pitt framkvæmdastjóri og Hrafnhildur Schram listfræðingur eru miklir unnendur góðrar listar.
Ljúfir listunnendur David Pitt framkvæmdastjóri og Hrafnhildur Schram listfræðingur eru miklir unnendur góðrar listar.
Dainius Bendikas, aðjunkt í fatahönnun, og Thomas Pausz, lektor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Listfengir félagar Dainius Bendikas, aðjunkt í fatahönnun, og Thomas Pausz, lektor við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.

Verkin á sýningunni eru blæbrigði margra listmiðla og liggja á mörkum hljóðlistar, kvikmyndagerðar og vídeólistar. Úr verður einstök, falleg og áhugaverð sýning.

Laufey Helgadóttir listfræðingur og leiðsögumaður, sem búsett er í París og Borgþór Kjærnested, leiðsögumaður, framkvæmdastjóri og túlkur.
Búsett í París Laufey Helgadóttir listfræðingur og leiðsögumaður, sem búsett er í París og Borgþór Kjærnested, leiðsögumaður, framkvæmdastjóri og túlkur.
Hjónin Áskell Másson tónskáld og Sigríður Búadóttir hjúkrunarfræðingur sjást oft á listasýningum.
Listfeng hjón Hjónin Áskell Másson tónskáld og Sigríður Búadóttir hjúkrunarfræðingur sjást oft á listasýningum.

Verk Doddu Maggýjar hafa verið sýnd víða í söfnum, galleríum og á listamessum, bæði á Íslandi og erlendis, svo sem í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Malmö Konsthall í Svíþjóð, Scandinavia House í New York, Yale-háskóla í Bandaríkjunum og Contemporary Art Society í London.

Klara Stephensen og bræðurnir Eggert feldskeri, og Friðrik, fyrrverandi forstjóri Straums, Jóhannssynir.
Listræn þrenna Klara Stephensen og bræðurnir Eggert feldskeri, og Friðrik, fyrrverandi forstjóri Straums, Jóhannssynir.
Rakel Halldórsdóttir og dætur hennar, María Anna og Ellen Elísabet Arnarsdætur, voru sumarlegar og flottar.
Fallegar mæðgur Rakel Halldórsdóttir og dætur hennar, María Anna og Ellen Elísabet Arnarsdætur, voru sumarlegar og flottar.
Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Á bak við hana má sjá eitt verka sýningarinnar, þar sem gestir geta sest niður, hlustað á plötu, sem er eitt af verkum sýningarinnar og útgefið í 30 tölusettum eintökum, og horft á listaverkið á veggnum breytast um leið.
Stýrir af lyst Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Á bak við hana má sjá eitt verka sýningarinnar, þar sem gestir geta sest niður, hlustað á plötu, sem er eitt af verkum sýningarinnar og útgefið í 30 tölusettum eintökum, og horft á listaverkið á veggnum breytast um leið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“