Páll Óskar heimsækir fólk til jóla
Söngvarinn ástsæli og athafnasami Páll Óskar Hjálmtýsson deildi fyrir stuttu myndbandi á Facebook like-síðu sína þar sem hann sýnir nýju plötuna hans, Kristalsplötuna, sem er komin út á vinyl, geisladisk og í stafrænu formi á Spotify og öðrum streymisveitum.
Platan er handföndruð og varði Páll Óskar, ásamt nokkrum vinum og kunningjum, nokkrum kvöldstundum í að föndra 2000 diska og 1000 vinylplötur.
Áhugasömum bauðst að forpanta plötuna hjá Heimkaup og sá glaðningur fylgdi með að Páll Óskar ætlaði að heimsækja alla sem myndu forpanta og afhenda þeim plötuna. Þó að Páll Óskar sé með vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, fóru viðtökurnar í forsölu plötunnar fram úr vonum og þegar komið var yfir ríflega 1000 eintök var ákveðið að fleiri heimili yrðu ekki heimsótt.
Páll Óskar er búinn að heimsækja 200 heimili, en á eftir að heimsækja 900 til viðbótar. „Ég verð líklega að því fram til jóla,“ segir Páll Óskar og brosir.
Þeir sem ekki voru svo forsjálir að panta í forsölu og fá Páll Óskar heim að dyrum með plötu eða geisladisk, geta hinsvegar fest eintak á geisladisk eða plötu í næstu verslun eða á Heimkaup.is.