fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Ólafur Arnalds í pakistönsku brúðkaupi – „Ég hef aldrei dansað jafn lengi allsgáður“

Ástin lærist í skipulögðum hjónaböndum – Sjálfsmorðssprengjuárás daginn áður en hann lenti

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 13. ágúst 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds ferðaðist nýverið til borgarinnar Lahore í Pakistan til að vera viðstaddur í brúðkaupi vinkonu sinnar, rithöfundarins Anam Sufi. Ólafur og Sufi hafa þekkst í meira en áratug en þetta var í fyrsta skipti sem hann hitti hana í heimalandi hennar. Ólafur segir ferðalagið hafa verið mikla upplifun og að það sé hollt að fara á staði sem þessa til að sjá hvernig hlutirnir eru í raun og veru.

Fólk vill sýna hið raunverulega Pakistan

Vinátta Ólafs og Sufi hófst árið 2006 eftir að hún sendi honum skilaboð á Myspace og lýsti yfir ánægju sinni með tónlist hans. Síðan þá hafa þau verið nánir vinir og hist margoft í London. Ólafur segir: „Hún er ekki vel þekkt en mig langar til hjálpa til við að koma henni á framfæri.“ Ólafur og Sufi störfuðu saman í fyrra við gerð plötu fyrir Late Nights Tales-seríuna. Margir heimsþekktir tónlistarmenn á borð við Jamiroquai, The Flaming Lips og Fatboy Slim hafa tekið þátt í því verkefni í gegnum tíðina. Hluti af framlagi Ólafs var smásaga eftir Sufi sem lesin var upp af leikaranum David Tennant.

„Ekki sama land og birtist okkur í vestrænum fjölmiðlum“

Síðan bauð hún honum í brúðkaupið sitt „eins og vinir gera“. Ólafur hafði aldrei komið til Pakistan áður en fannst þetta einstakt tækifæri og ákvað að þiggja boðið. Brúðkaupið fór fram í heimaborg brúðhjónanna, Lahore í austurhluta landsins nálægt indversku landamærunum. Lahore er ein af fjölmennustu borgum heims með meira en 10 milljónir íbúa. Þetta er frjálslynd borg á pakistanskan mælikvarða og þekkt fyrir ríka sögu og merkilegan arkitektúr.

„Þetta er ótrúlega fallegt land. Staður sem ekki mörgum dettur í hug að heimsækja. Sagan þarna er ótrúleg, arkitektúrinn stórbrotinn og fólkið með því gestrisnara sem ég hef kynnst. Fólkið reynir mikið að sýna útlendingum að hið raunverulega Pakistan er ekki það sama og landið sem birtist okkur í vestrænum fjölmiðlum.“

Ólafur segir ekki mikið af ferðamönnum á svæðinu. „Það er mjög lítil ferðamennska í Lahore. Það er mun meira í höfuðborginni Islamabad.“ Hann segir einnig nokkuð af ferðamönnum í norðurhluta landsins, við Himalæjafjöllin.

Dansaði allsgáður í fimm daga

Ólafur segir stærð brúðkaupsveislunnar hafa komið sér á óvart en gestirnir voru um 1.500 talsins sem er víst mjög eðlilegur fjöldi. „Þetta er efnað fólk en brúðkaup í Pakistan eru almennt séð mjög stór líkt og í Indlandi. Fólkið þarna leggur mikið upp úr brúðkaupum. Jafnvel þó að fólk sé ekki ríkt þá eru brúðkaupin yfirleitt mjög vegleg.“ Veislan sjálf stóð yfir í fimm daga og Ólafur var viðstaddur allan tímann.

Fjölskyldurnar skipta kostnaðinum á milli sín en yfirleitt lendir meirihluti kostnaðarins á fjölskyldu brúðgumans. Flestir gestirnir voru fólk frá Lahore og nágrenninu en einnig mættu nokkrir erlendir vinir brúðhjónanna, sem eru bæði menntuð utan Pakistans. Ólafur var þó eini Íslendingurinn í veislunni.

Dansað í fimm daga.
Veislan Dansað í fimm daga.

Reynt var að koma því í kring að Ólafur spilaði í veislunni en það gekk ekki eftir. „Það var hægara sagt en gert að finna píanó í þessari borg.“ Það var þó mikið stuð og dansað fram eftir kvöldi alla dagana. „Ég hef aldrei dansað jafn mikið allsgáður. Það var uppljómandi að sjá að það sé hægt að halda fimm daga brjálað partí án þess að nokkur bragði áfengi.“

Áfengi er ólöglegt í Pakistan fyrir múslima sem eru um 97 prósent landsmanna. „Ef maður vill drekka þá verður maður að gera það á hótelunum, það er aðallega fyrir ferðamenn. Fólk í landinu drekkur almennt ekki mikið og ef það gerir það þá drekkur það heimabrugg.“

Ólafur var hrifinn af matnum sem var boðið upp á. „Maturinn er mjög svipaður og á Indlandi. Þarna var mikið af lambakjöti, baunaréttum og spínatréttum. Þetta var nokkuð gott fyrir grænmetisætu eins og mig.“

Ástin getur verið lærð

Í Pakistan er löng hefð fyrir því að hjónabönd séu skipulögð af foreldrunum og þau eru notuð til að tengja fjölskyldur saman. Í seinni tíð hefur þeim hjónaböndum þó fjölgað þar sem hjónin kynnast að fyrra bragði. Ólafur segir að þetta hjónaband hafi verið blanda af hvoru tveggja. „Það var stungið upp á ráðahagnum af fjölskyldunum og þau höfðu ekkert á móti því. Síðan urðu þau ástfangin. Þeim finnst þetta falleg hefð og vilja endilega halda í hana.“

„Þetta er sennilega frekar stundað í sveitum og afskekktari byggðum“

Ólafur talaði bæði við Sufi og systur hennar um þetta mál. Þær sögðu að í upphafi hafi komið upp efasemdir um að hjónabandið myndi ganga upp. „En svo kemur ástin alltaf á endanum. Ástin getur líka verið lærð.“

Fjölkvæni er einnig leyft í Pakistan en það á ekki við í þessu tilviki. Þau eru á sama aldri og mjög vestræn í hugsun. Ólafur segir fjölkvæni ekki stundað í borgunum, sérstaklega ekki frjálslyndri borg eins og Lahore. „Þetta er sennilega frekar stundað í sveitum og afskekktari byggðum.“

Sjálfsmorðssprengjuárás sló hann ekki út af laginu

Þann 24. júlí síðastliðinn var gerð sjálfsmorðssprengjuárás á grænmetismarkaði í Lahore, sú þriðja á árinu. 26 manns létust og 54 særðust í árásinni. Ólafur kom til borgarinnar daginn eftir árásina og sagðist ekki hafa orðið mikið var við hana. „Það er mikið öryggi í borginni almennt og ég varð ekki var við sérstaka öryggisgæslu vegna árásarinnar. Það eru öryggishlið víða, þar sem leitað er að sprengjum, vopnum og fleiru. En þetta er auðvitað hræðilegt.“

Ætlar aftur til Pakistan við fyrsta tækifæri.
Ólafur Ætlar aftur til Pakistan við fyrsta tækifæri.

Árásin var rædd við matarborðið í brúðkaupinu. „Það var aðallega verið að spyrja okkur útlendingana hvort þetta hefði hrætt okkur frá því að koma til landsins. Þetta sló mig ekkert út af laginu. Það er nákvæmlega það sem þeir vilja, að maður verði hræddur og fari að haga lífi sínu á annan hátt en maður hefði annars gert.“

Ólafur segist hafa orðið var við ljótar athugasemdir og kynþáttahatur á samfélagsmiðlum eftir að hann greindi frá því að hann væri á leiðinni til Pakistans. „Það má ekki nefna múslimaríki á nafn án þess að þetta skjóti upp kollinum. Þetta sýnir fram á mikilvægi þess að segja frá hlutunum eins og þeir eru og að fólk fái að kynnast þessum hlutum af eigin raun.“

Hann segist strax byrjaður að skipuleggja næstu ferð til Pakistans en óvíst er hvenær hún verði. „Þá ætla ég að heimsækja norðurhlutann, uppi við fjöllin. Það eru ein fegurstu landsvæði á jörðinni held ég. Ég ætlaði að heimsækja það svæði núna, en það verður að bíða þar til næst.“

Þekkt fyrir ríka sögu og arkitektúr.
Lahore Þekkt fyrir ríka sögu og arkitektúr.

Þjóðlegar hefðir voru ríkjandi í veislunni.
Bumbusláttur Þjóðlegar hefðir voru ríkjandi í veislunni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“